Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Laufengi 11

112 Reykjavík

79.900.000 kr.

771.236 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2214375

Fasteignamat

71.950.000 kr.

Brunabótamat

55.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1994
svg
103,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 8. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Laufengi 11, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Um er að ræða mikið endurnýjaða 4. herb. íbúð á annarri hæð á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Íbúðin er staðsett í snyrtilegu fjölbýlishúsi og er 103,6 fm. að stærð ásamt tveimur bílastæðum þar af eitt yfirbyggðt. Að innan skiptist eignin í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu auk baðherbergis og þvottahúss sem eru í sama rými. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og má m.a. telja gólfefni, lýsingu, eldhús, baðherbergi, fataskápa, hurðir og fleira. Húsið var nýlega sprunguviðgert og málað ásamt því að skipt var um gler og gluggar lagaðir eftir þörfum. Skipt var um gler í flestum gluggum íbúðar.

Nánari lýsing: 

Gengið er inn um sérinngang af svalagangi.
Forstofa er flísalögð og með góðum fataskápum.
Eldhúsið er opið við stofu. Innrétting hefur verið endurnýjuð ásamt heimilistækjum. Tveir ofnar og spanhelluborð. Mjög gott vinnupláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Stofan er rúmgóð og ber vel setustofu og borðstofu. Útgengt er á svalir til suðausturs með útsýni til fjalla. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi.
Hjónaherbergið er sérstaklega rúmgott með fataskápum. Barnaherbergin eru einnig rúmgóð og bæði með skápum.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað að hluta. Nýlega var útbúin „walk in“-sturta og einnig voru innréttingar endurnýjaðar. Inn af baðherbergi er þvottahús með góðum innréttingum með miklu geymsluplássi ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla er í kjallara. 

Næg bílastæði eru fyrir framan hús. Íbúðinni fylgir tvö bílastæði og þar af er eitt yfirbyggt.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, Spöngina, Egilshöll, skóla, leikskóla, og golfvöllur er í göngufæri.

Upplýsingar veitir Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða [email protected]



 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. júl. 2021
44.100.000 kr.
51.500.000 kr.
103.6 m²
497.104 kr.
19. jún. 2019
38.400.000 kr.
39.000.000 kr.
103.6 m²
376.448 kr.
11. maí. 2010
20.250.000 kr.
20.200.000 kr.
103.6 m²
194.981 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík