Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Vista
raðhús

Naustahlein 26

210 Garðabær

79.950.000 kr.

896.300 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2071988

Fasteignamat

81.250.000 kr.

Brunabótamat

49.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
89,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

VELKOMIN Í OPIÐ HÚS!
Naustahlein 26, 210 Garðabær
Mánudaginn 8. júní 2026 á milli kl. 16:30–17:00
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali, sýnir eignina.
Hlökkum til að sjá ykkur!


STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Bjart og vel skipulagt 3ja herbergja endaraðhús á einni hæð, samtals 89,2 fm, að Naustahlein 26, 210 Garðabær. Með stórum palli / verönd og garðhúsi / áhaldageymslu með vinnuaðstöðu á steyptri plötu (áætlað u.þ.b. 9,9 fm, óskráðir fermetrar).
Eignin er í aldursbundnu húsnæði fyrir 60 ára og eldri.

Raðhúsið er með gott alrými þar sem stofa/ borðstofa og eldhús liggja vel saman. Stofan er með gólfsíðum gluggum sem gefa rýminu mikla birtu. Eldhús er með nýlegri innréttingu, góðu skápaplássi, nýlegum tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Baðherbergi er nýlegt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni o.fl. Útirýmið er vel nýtt með fallegum garði, stórum palli/ verönd og garðhúsi / áhaldageymslu með vinnuaðstöðu á steyptri plötu (áætlað u.þ.b. 9,9 fm, óskráðir fermetrar). Fyrir framan er hellulagt setusvæði með kvöldsól og sérsmíðaðri grillaðstöðu. Sér innkeyrsla er við eignina með rafbílahleðslu.

Við eignina eru malbikaðir göngustígar og örstutt göngufæri í þjónustukjarna DAS. Möguleiki er á að nýta sér þjónustu hjá DAS, m.a. hárgreiðslustofu, mat, snyrtistofu, sundlaug, tækjasal og sjúkraþjálfara o.fl.
Nánar tiltekið eign að Naustahlein 26, fastanúmer 207-1988 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi og sameignarréttindi eftir því sem við á.

Ásett verð: 79.950.000 kr.


*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*


*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Sölupunktar eignar:
  • Stór pallur/verönd, garður og garðhús (u.þ.b. 9,9 fm)
  • Gólfsíðir gluggar – björt stofa/borðstofa
  • Nýlegt eldhús, innbyggð uppþvottavél, gott skápapláss
  • Nýleg innrétting með vaski, upphengt salerni og handklæðaofn
  • 60+ • DAS í göngufæri • innkeyrsla með rafhleðslu

Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér innkeyrslu og útirými (pall/verönd, garð að aftan og hellulagt setusvæði að framan). Á lóð er einnig garðhús/áhaldageymsla með vinnuaðstöðu (u.þ.b. 9,9 fm – óskráðir fermetrar).

Nánari lýsing:
Forstofa: Snyrtileg forstofa, flísar á gólfi, gott pláss fyrir yfirhafnir.
Stofa/ borðstofa: Björt stofa/borðstofa í alrými, gólfsíðir gluggar sem gefa mikla birtu.
Eldhús: Nýleg innrétting, gott skápapláss og vinnufletir, innbyggð uppþvottavél, nýleg tæki, korkdúkur á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Með fataskáp, parket á gólfi og útgengi út á verönd/bakgarð um svalarhurð (sett upp 2023).
Baðherbergi: Nýlegt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús/ geymsla: Ágætis þvottahús og geymsla með hillum.
Útirými – bakgarður: Fallegur og vel hirtur garður með stórum palli/verönd. Garðhús/áhaldageymsla með vinnuaðstöðu á steyptri plötu (u.þ.b. 9,9 fm – óskráðir fermetrar).
Útirými – framhlið: Hellulagt setusvæði, kvöldsól og sérsmíðuð grillaðstaða.
Innkeyrsla: Sér innkeyrsla með rafbílahleðslu.


DZIEŃ OTWARTY
Naustahlein 26, 210 Garðabær
Nieruchomość będzie prezentowana w poniedziałek, 8 czerwca 2026 r., w godzinach od 16:30 do 17:00.
Benedikt Ólafsson, licencjonowany pośrednik w obrocie nieruchomościami, będzie prezentował nieruchomość.
Serdecznie zapraszamy!

STOFN FASTEIGNASALA PREZENTUJE:
Jasny i funkcjonalnie zaprojektowany 3-pokojowy dom szeregowy (segment skrajny) na jednej kondygnacji o łącznej powierzchni 89,2 m², położony przy Naustahlein 26, 210 Garðabær.
Nieruchomość znajduje się na osiedlu przeznaczonym dla osób w wieku 60 lat i starszych.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, eigandi, löggiltur fasteignasali, félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661-7788 eða á netfanginu [email protected]
Við hjá STOFN fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. okt. 2014
27.550.000 kr.
29.500.000 kr.
89.2 m²
330.717 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ