Lýsing
Miklaborg kynnir: fallega 4ra herbergja íbúð á 2.hæð við Maríugötu 9 í Urriðarholtinu í Garðabæ. Um er að ræða 133,6 fm íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi sem byggt var 2023. Íbúðin skiptist í forstofu, 3 rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu með útgengi út á svalir sem snúa í vestur. Sérgeymsla er í kjallara ásamt vagna- og hjólageymslu.
Nóg af bílastæðum eru fyrir framan hús ásamt sameiginlegum hleðslustöðvum.
Virkilega vel skipulögð og björt eign í eftirsóttu og barnvænu hverfi í Garðabæ.
Bókið skoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala, í síma 770-0500 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi I: Baðherbergi er flísalagt að hluta með hnotu baðinnréttingu og speglaskápum, upphengdu klósetti, handklæðaofni og baðkari.
Eldhús: Er samtengt með stofu og borðstofu og er með fallegri hnotu innréttingu og eldhúseyju.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi út á vestur svalir. Stofan er með glugga á þrjá vegu og er aukin lofhæð sem prýðir íbúðina og ljóst harðparket á gólfum.
Baðherbergi II: Með hnotu baðinnréttingu og speglaskáp, upphengdu klósetti og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfum og fataskápi.
Geymsla: Rúmgóð 12,7 fm geymsla í kjallara með aukinni lofhæð.
Bókið skoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala, í síma 770-0500 eða [email protected]