Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Þórunnarstræti 123 íbúð 101

600 Akureyri

72.600.000 kr.

553.354 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2151970

Fasteignamat

61.200.000 kr.

Brunabótamat

70.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
131,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 9. júní 2026 kl. 16:00 til 16:30

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - [email protected]

Þórunnarstræti 123, íbúð 101 - Mjög björt og skemmtileg 5 herbergja miðhæð í þríbýlishúsi miðsvæðis á Akureyri - stærð 131,2 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, geymslu, þvottahús og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og ljósri sprautulakkaðri innréttingu með flísum á milli skápa. Tengi er fyrir uppþvottavél. 
Stofan er í rúmgóðu og björtu rými með parketi á gólfi og stórum gluggum til tveggja átta. Þaðan er fallegt útsýni.
Svefnherbergin eru fjögur. Hjónaherbergið er með parketi á gólfi, fataskáp og útgengi út á hellulagða suðurverönd. Barnaherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, baðkari með sturtutækjum, gólfhita, handklæðaofni og opnanlegum glugga.
Gestasalerni er með vegghengur wc og handlaug.
Þvottahús er innaf eldhúsi með máluðu gólfi og innréttingu með vaski. Úr þvottahúsi er gengið út í garð til vesturs.
Geymsla er innaf eldhúsi með máluðu gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Sérgeymsla fylgir eigninni á jarðhæð.

Annað:
- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2024
- Nýjir gluggar frá 2026
- Stór garður sem hægt er að fara í úr hjónaherbergi sem og þvottahúsi
- Sér stæði er við norður enda hússins
- Skv seljanda er búið er að drena með norðurhlið hússins
- Frábær staðsettning með góðu útsýni 
- Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á þaki þar sem er áætlaður kostnaður fyrir allt húsið er kr. 11.787.811.-

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. maí. 2022
35.550.000 kr.
53.000.000 kr.
131.2 m²
403.963 kr.
17. des. 2015
21.950.000 kr.
28.000.000 kr.
131.2 m²
213.415 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone