Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Laugarnesvegur 87

105 Reykjavík

108.900.000 kr.

990.901 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2256122

Fasteignamat

96.800.000 kr.

Brunabótamat

74.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
109,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 8. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Laugarnesvegur 87, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 603. Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. og Arnþór Jónsson, lfs., kynna í einkasölu glæsilega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 6. hæð (efstu) í lyftuhúsi við Laugarnesveg 87 í Reykjavík. Yfirbyggðar sólríkar suður-svalir, sér inngangur af utanáliggjandi svölum og stæði í lokaðri bílageymslu. Hús og sameign er öll hin vandaðasta og húsið klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Gott aðgengi er að húsinu, næg bílastæði á lóð og snjóbræðsla í stétt. Frábær staðsetning þar sem stutt er út á stofnæðar og alla helstu þjónustu.
 
Nánari lýsing:
Allar innréttingar íbúðarinnar eru sérsmíðaðar og hannaðar af arkitekt. Granít steinn er á borðplötum í eldhúsi. Gegnheilt eikarparket með sérstakri hljóðeinangrun er í herbergjum og alrými, og ljós náttúrusteinn á eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.
 
Forstofa með fataskáp, náttúrusteinn á gólfi. 
Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar í björtu og opnu rými, gegnheilt parket á gólfi. Sérsmíðaður sjónvarpsskápur í stíl við innréttingar eignarinnar fylgir eigninni. Útgengt út á yfirbyggðar svalir sem snúa í suður.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu, góðri vinnuaðstöðu og flísar á milli skápa. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi við glugga. Náttúrusteinn á gólfi. Granít borðplötur. Tenglum fyrir rafmagnstæki hefur verið komið haganlega fyrir og eru ekki sýnilegir.
Þvottahús er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski. Náttúrusteinn á gólfi. Nýtist einnig sem búr/geymsla.
Baðherbergi flísalagt með rúmgóðri innréttingu og baðkari, handklæðaofn. Náttúrusteinn á gólfi.
Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum, gegnheilt parket á gólfi.
Svefnherbergi, gegnheilt parket á gólfi.
Geymsla í kjallara er mjög rúmgóð (8,2 fm). Einnig er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla, og önnur sameiginleg geymsla í kjallara hússins.
 
Helstu endurbætur:
2020: Íbúðin máluð, parket slípað og lakkað.
2021: Svalir yfirbyggðar og glerskermun.
2026: Skemmd í stofuglugga lagfærð.

Eignin er einstaklega vel með farin og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Sameign er afar snyrtileg og viðhaldi vel sinnt. Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar og hússjóður er kr. 30.614.
Húsið var byggt árið 2001 af Íslenskum aðalverktökum og er allt hið vandaðasta. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected] og Arnþór Jónsson lfs. í síma 663-3030 og netfanginu [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík