Lýsing
Miklaborg og Böddi kynna:
Bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 3. hæð við Miðvang með einstöku útsýni og rúmgóðum yfirbyggðum svölum sem nýtast stóran hluta ársins.
Eignin er skráð samtals 67,1 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 65,0 fm og sérgeymsla í kjallara 2,1 fm. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu eru svalir hluti af séreign og búið er að loka þeim með svalalokun.
Ath: Þar sem íbúðin er ekki með neinum húsgögnum þá fengum við aðstoð frá gervigreind til að setja húsgögn inn í tvö rými en lét AI fjarlægja veggstubb sem aðskilur eldhús og stofu en þetta er léttur veggur og parketlagt undir hann (sjá næstsíðustu mynd).
Nánari upplýsingar veitir Böddi löggiltur fasteignasali í síma 821-6300 eða á [email protected]
Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi og góð geymsla/þvottahús er inn af forstofu
Bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús sameinast með fallegu útsýni yfir nærumhverfið og útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem skapa aukið notagildi eignarinnar.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, ofni og helluborði með háfi.
Svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa, hvítri innréttingu
Parket er á gólfum eignarinnar að undanskildu baðherbergi og forstofu þar sem eru flísar.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Húsvörður er starfandi í húsinu og húsfélagið er öflugt og vel rekið.
StaðsetningEignin er staðsett á vinsælum stað þar sem stutt er í verslanir, þjónustu, skóla, heilsurækt og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Böddi löggiltur fasteignasali í síma 821-6300 eða á [email protected]