Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Smyrilshlíð 11

102 Reykjavík

99.900.000 kr.

941.565 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509096

Fasteignamat

95.650.000 kr.

Brunabótamat

73.540.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2020
svg
106,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur til sölu bjarta og vandaða 3-4ja herb. íbúð á 2. hæð í glæsilegri og vandaðri nýlegu lyftufjölbýli miðsvæðis í Reykjavík á Hlíðarenda með stæði í bílageymslu og sérgeymslu.

Smyrilshlíð 11 er virkilega vandað og vel skipulagt fjöleignarhús. Byggingin er samsett úr 22 húseiningum, 11 stigagöngum á 2.-5. hæðum sem saman mynda eina en fjölbreytta heild með fallegu og skjólsömu miðsvæði sem nýtist einkar vel. Byggingarnar eru viðhaldslitlar, einangraðar og klæddar að utan. Í anddyri stigagangs eru stílhreinar flísar og hlýlegt og slitsterkt teppi á stigum. 

Íbúð 202 er 106,0 fm. að meðtaldri 9,1 fm. geymslu og skiptist í anddyri/gang, rúmgott alrými sem telur stofu og eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottarými. Möguleiki er á aukaherbergi við enda stofu með litlum tilkostnaði. Stýrt aðgengi er inn í húsið og er lyklalaust aðgengi. Aukin lofthæð er í íbúðinni og eru vandaðir gólfsíðir gluggar. Innfelld lýsing.
* 3ja herbergja íbúð á 2. hæð 
* Stærð 106,0 fm., þar af 9,1 fm. geymsla
* Svalir, 7,1 fm.
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla
* Bílastæði merkt B-22 í bílakjallara 

Nánari lýsing:
Anddyri/gangur: Fataskápur. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Vönduð innrétting með efri skápum frá JKE designog quartzborðplötu frá Granítsmiðjunni. Raftæki eru frá Miele, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Útgegnt út á 7,1 fm. svalir. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Fataskápur. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Ljós vönduð innrétting með quartzborðplötu frá Granítsmiðjunni. Spegill yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.
Svalir: Snúa í norðaustur og eru 7,1 fm. Útiljós á svölum. Vatnsvarinn tengill.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er í kjallara, stærð 9,1 fm. 

Bílageymsla: Bílakjallarinn er á tveimur hæðum með góðri náttúrulegri loftun og beinu aðgengi í alla stigaganga. Aðgangstýring er í bílageymslunni sem og í öllu húsinu sem auðveldar aðgengi. Sérstök rafmagnsheimtaug er í bílakjallarann sem tryggir öllum aðgengi að rafmagni fyrir rafmagnsbíla.
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Gangstéttin umhverfis húsið og valdar leiðir inn í garðinum er upphitaðar. Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður. Hann er lokaður af með húsunum og myndar lokað svæði með runnum og trjám ásamt borðum og bekkjum og upplýstu leiksvæði fyrir börn, sem gerir svæðið mjög fjölskylduvænt. Hurð í garði er einnig aðgangsstýrð og því garðurinn læstur fyrir utanaðkomandi aðilum

Stutt er í alla helstu þjónustu, frábærar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustaði.

Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

img
Sjöfn Hilmarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Domusnova fasteignasala
Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
img

Sjöfn Hilmarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone

Sjöfn Hilmarsdóttir

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur