Opið hús: Þverholt 13, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Skipting eignar: Anddyri, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, svalir með svalalokun, þvottahús/búr, sérgeymsla og stæði í bílageymslu.
Rúmgóð forstofa með fataskáp.
Flísalagt baðherbergi með fallegri innréttingu, walk in sturtu með glerskilrúmi.
Eldhús er með virkilega fallegri ljósri innréttingu sem nær upp í loft og góðri eldunareyju. Innbyggður ísskápur, tengi fyrir uppþvottavél og háfur með lýsingu yfir helluborði.
Stofan er opin inn að eldhúsi og er glæsilegt útsýni frá stofunni. Rennihurð er frá borðstofu út á yfirbyggðar svalir.
Yfirbyggðar svalir með opnanlegum svalalokunum. Einstaklega fallegt útsýni yfir miðbæinn og til sjávar.
Baðherbergi er flísalagt en Pergo parket á öðrum gólfum.
Þverholt 13 er staðsteypt hús, einangrað að utan og klætt með fallegum ljósum flísum. Skjólgóð baklóð og bílakjallari þar sem hægt er að kaupa stæði með flestum íbúðum. Stutt er í alla þjónustu og göngufæri við miðbæ Reykjavíkur.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður