Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1925
205,7 m²
7 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Bílskúr
Lýsing
Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu eignina við Suðurgötu 10 ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Mikið endurnýjað fimm herbergja einbýlishús á þremur hæðum ásamt bílskúr. Húsið var byggt árið 1925 og bílskúrinn árið 2005. Snyrtileg eign í góðu ástandi sem hefur verið vel við haldið.
Íbúðarhúsið er skráð alls 141,3 fm. og bílskúrinn 64,4 fm.
Leigulóð hússins er 672 fm.
Íbúðarhúsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 5 herbergi, baðherbergi, sjónvarpshol og snyrtingu.
Neðsta hæð:
Á hæðinni er baðherbergi, þrjú svefnherbergi og lítil forstofa.
Inngangur er á neðstu hæð þar sem er lítil forstofa
Þrjú parketlögð svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt. Baðkar, hvít innrétting og handklæðaofn.Gólfhiti. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Gangur er flísalagður.
Miðhæð:
Á hæðinni er forstofa, eldhús og stofa. Parket er á miðhæð.
Aðalinngangur þar sem komið er inn í forstofu.
Eldhús með hvítri innréttingu.
Stofa er parketlögð með gluggum í suður.
Frá miðhæð er gengið út á pall sem er vestan við húsið. Stigi er frá palli niður á hellulagt svæði. Það við er sólpallur og heitur pottur.
Efsta hæð:
Á efstu hæðinni eru tvö herbergi, sjónvarpshol og lítil snyrting. Úr sjónvarpsholi er gengið út á svalir sem snúa í austur (ekkert handrið er á svölunum). Á hæðinni er upprunalegt timburgólf.
Bílskúr var byggður árið 2005. Rafmagnsopnari er á bílskúrshurð. Gólfhiti er í bílskúr. Við bílskúr er góður pallur sem snýr í suður.
Garður er skjólsæll og gróinn. Þar er lítill garðkofi.
Árin 1999/2000 var eignin mikið endurnýjuð þar sem skipt var um einangrun í öllum veggjum, auk þess sem neysluvatn, rafmagn og frárennsli var endurnýjað.
Skipt var um allt járn á þaki skömmu fyrir árið 2000 og var á sama tíma endurnýjað timbur að hluta.
Húsið er steinsteypt með timburgólfi milli hæða.
Skipt var um glugga í forstofu og svalahurð á miðhæð árið 2021.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. des. 2019
35.800.000 kr.
22.000.000 kr.
205.7 m²
106.952 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026