Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
einbýlishús

Garðastræti 47

101 Reykjavík

212.500.000 kr.

1.167.582 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003880

Fasteignamat

176.700.000 kr.

Brunabótamat

84.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1919
svg
182 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Margir inngangar

Lýsing

Miklaborg kynnir: Garðastræti - Einstakt sérbýli á eftirsóttum stað

Reisulegt og ekki síður sögufægt hús við Garðastræti 47 en samkvæmt heimildum Minjastofnunnar var húsið það fyrsta sem byggt var við Garðastræti á því herrans ári 1919. Um er að ræða steinhús með timburgólfum á milli hæða. Húsið hefur fengið gott viðhald í áranna rás og garður við húsið er mikil prýði. Að innan geislar húsið af miklum karakter þar sem haldið hefur verið í upprunaleg handrið milli hæða, veggklæðningar, gólffjalir og kverkalista í loftum svo dæmi séu nefnd. Lóð hússins er 238,7 fm að stærð og er skráð eignarlóð. Steinveggur meðfram Garðastræti rammar lóðina af frá götu og tryggir gott næði. Stórglæsilegur garður skjólgóðri og sólríkri viðarverönd með skjólhýsi á suðausturhorni lóðar. Snjóbræðsla í hellulögn og tröppum tryggir auðvelt aðgengi og öryggi, jafnvel í miklum snjó.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða [email protected]

Húsið er á þremur hæðum að viðbættu risi. Inngangur er á aðalhæð bakatil. Allar hæðir eru með viðargólfi utan kjallarhæð sem er með harðparketi.
1. hæð:
Anddyri: Rúmgott anddyri sem er flísalagt að hluta

Stofur: Borð- og setstofur með fallegum rósettum í lofti. Borðstofuhlutinn er til hliðar við eldhús og snýr út í garð. Úr borðstofu er útgengt á svalir þaðan sem gengið er niður í garðinn.

Eldhús: Gott skápa- og vinnupláss, falleg innrétting og vönduð tæki m.a. breið gaseldavél. Handgerður koparvaskur og sérinnflutt blöndunartæki í anda hússins, m.a. fallegur pottakrani við eldavél. Ítalskur marmari á borðum og veggjum, en ofan hans viðarpanell. Hurðin sem áður nýttist til að ganga inn í eldhúsrýmið er enn á sínum stað en eldhúsinnréttingin er þar í borðhæð. Hægt er þó að nota hurðina til að sækja sér vistir eða einfaldlega til að skila af sér innkaupapokunum eftir verslunarferð, skemmtilegur fídus og sniðug lausn.

Snyrting: Lítil flísalögð, veggir að hluta flísalagðir. Upphengd salernisskál.
Teppalagður stigi með handriði vísar upp á efri hæðina:
2. hæð:
Herbergi: Þrjú herbergi eru á hæðinni. Tvö þeirra rúmgoð svefnherbergi, en eitt minna sem áður var barnaherbergi en er nýtt sem skrifstofa í dag.

Baðherbergi: Mjög rúmgott með frístandandi baðkari, upphengdri salernisskál, sturtu og fallegri handlaug. Smekklega hannað rými með viðargólfi.

Þvottahús: Nægilegt rými með opnanlegu fagi (þakgluggi)

Ris: 40 fm rými óskráð rými að grunnfleti með ýmsa notkunarmöguleika. ATH að risið er ekki í uppgefnum fermetrafjölda hússins. Rýmið hefur verið nýtt sem unglingaherbergi, með frábæru tölvuherbergi sem einnig hefur nýst sem skrifstofa. Endurnýjaður gluggi á gafli og einn þakgluggi og súðgeymslur.

Kjallari:

Skiptist í stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Inngangur er utan frá og mætti nýta kjallarann sem séríbúð ef áhugi væri á því. Hluti af kjallara er ekki með fulla lofthæð.

Garðastræti 47 er hús með miklum karakter og virðugleika staðsett á einum mest sjarmerandi hluta Reykjavíkur í grennd við Tjörnina og skammt frá iðandi mannlífi, menningu og fjölbreyttri flóru veitingastaða og viðburða.

Nánari upplýsingar veita Jón Rafn lögg fasteignasali í síma 695-5520 eða [email protected] og Jason Guðmundsson, lögg fasteignasali 8993700 [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. jún. 2007
35.440.000 kr.
64.500.000 kr.
182 m²
354.396 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík