Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
svg

29

svg

24  Skoðendur

svg

Skráð  6. jún. 2026

fjölbýlishús

Háaleitisbraut 30

108 Reykjavík

94.900.000 kr.

761.637 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014099

Fasteignamat

82.350.000 kr.

Brunabótamat

58.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
124,6 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 11. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Háaleitisbraut 30, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 04 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Háaleitisbraut 30 - Mikið endurnýjuð 5 herb. fjölskylduíbúð/endaíbúð með glæsilegu útsýni, tvennum svölum og þvottaherbergi inn af íbúð. Fallegt hús teiknað af Sigvalda Thordarson!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson og Atli K. Pálmason lögg. fasteignasalar kynna glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 124,6 fermetra 5 herbergja endaíbúð á 4. hæð (efstu) með glæsilegu útsýni og tvennum svölum (suðurs og vesturs) í fallegu steinsteyptu fjölbýlishúsi teiknuðu af Sigvalda Thordarson arkitekt við Háaleitisbraut 30 í Reykjavík. Gluggar íbúðar snúa til þriggja átta. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni og stór stofa sem opin við eldhús. Stórir gluggar gera það að verkum að íbúðin er virkilega björt og sjarmerandi. Þvottahús er inn af íbúð og geymsla í kjallara.

Íbúðin hefur fengið mikið viðhald að utan sem innan á undanförnum árum. M.a. er verið að múrviðgera og mála húsið. Skipt var um bárujárn og rennur á þaki árið 2021 og þá er búið að skipta um alla glugga sem voru komnir á tíma í húsinu (búið að skipta um alla glugga íbúðar). Á árunum 2018-2019 voru skólplagnir endurnýjaðar frá húsi og út í brunn og fóðraðar undir húsi ásamt því að dren var endurnýjað að hluta. Íbúðin var endurnýjuð að innan fyrir u.þ.b. fjórum árum síðan þar sem eldhús, baðherbergi og gólfefni var endurnýjað á virkilega fallegan og vandaðan máta.

Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuðum bílastæðum. Bakgarðurinn er tyrfður með fallegum gróðri á lóðarmörkum. 

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi, góðum gluggum til suðurs/vesturs og útgengi á svalir. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Afar glæsilegt útsýni er frá stofu yfir höfuðborgarsvæðið.
Svalir I: Snúa til vesturs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. fjórum árum síðan. Falleg KVIK eldhúsinnrétting sem gefur íbúðinni mikinn sjarma og karakter. Gott skápa- og vinnupláss. Siemens Studioline bakaraofn, spansuðuhelluborð, innb. Samsung kæliskápur með frysti og innb. AEG uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gluggi með fallegu útsýni til vesturs. Eldhús er opið við stofu.
Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. fjórum árum síðan. Flísalagt í gólf og veggi. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, innrétting við vask með speglaskáp og upphengt salerni.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs. Útgengi á svalir II frá hjónaherbergi.
Svalir II: Snúa til suðurs með afar fallegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.

Geymsla: Er 7 fermetrar og staðsett í kjallara hússins. 
Þvotta- og þurrkherbergi: Er sameiginlegt í kjallara með máluðu gólfi, gluggum til vesturs og flísum á veggjum.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. 
Sameiginlegt rými: Rúmgott með dúk á gólfi, vinnuborði og gluggum til vesturs.

Um að er ræða frábæra staðsetningu miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Stutt í allar helstu stofnæðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali 849-0672 / [email protected] eða Atli K. Pálmason lögg. fasteignasali 662-4252 / [email protected]

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jún. 2022
54.150.000 kr.
75.000.000 kr.
124.6 m²
601.926 kr.
19. ágú. 2016
33.600.000 kr.
38.500.000 kr.
124.6 m²
308.989 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur