Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1959
95 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Opið hús: 18. júní 2026
kl. 17:00
til 18:00
Opið hús: Gnoðarvogur 74, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 18. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali kynna fallega 4ja herbergja íbúð á efstu hæð í Gnoðarvogi 74. Mjög gott útsýni er úr íbúðinni til allra átta og er með stórar þaksvalir sem snúa í suður og austur.Eignin er afar vel staðsett í fallegu og grónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu ss. verslun, heilsugæslu, grunnskóla, menntaskóla og leikskóla.
Íbúðin er 90,4 fm auk 4,6 fm geymslu á jarðhæð. Gengið er inn á 2. hæð og því eru einungis tveir stigapallar að íbúðinni.
Aukin lofthæð er í íbúðinni að hluta. Svartar hurðir innan íbúðar. Fallegt parket á gólfi. Skápur er fyrir framan útidyrahurð á stigagangi.
Leigutekjur frá íbúð í kjallara ganga upp í hússjóð. Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Eignin skiptist í: Tvö svefnherbergi, baðherbergi, borðstofu/stofu, sjónvarpshol, þvottahús/geymslu og afar stórar svalir.
Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa: Björt og opin, parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Gráar flísar á gólfi, útgengi út á svalir.
Eldhús: Parket á gólfi, svört innrétting með viðar borðplötu, gott skápapláss, útsýni í tvær áttir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, nýleg viðarlituð innrétting með svartri borðplötu, baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór nýlegur skápur, útgengt á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, sett var tengi fyrir þvottavél og þurrkara og er nú nýtt sem þvottahús.
Geymsla: 4,6 fm á jarðhæð.
Viðhald síðustu ár:
- Nýlegar svalahurðir og ný eldvarnarhurð inní íbúð.
- Nýleg innrétting að hluta inni á baði, nýlegur vaskur og salerni ásamt flísum á gólfi.
- Nýlegur sólbekkur inni í hjónaherbergi ásamt nýjum fataskáp.
- Húsið var múrviðgert og málað á norður, suður og austurhlið 2024.
- Þak yfirfarið og málað 2019.
- Ofnalagnir endurnýjaðar innan íbúðar.
- Nýlegur þakdúkur á svölum.
- Nýleg borðplata í eldhúsi.
- Búið að endurnýja alla glugga í íbúðinni fyrir utan í tveim svefnherbergjum.
- Skólp fóðrað frá húsi útí götu 2026
Nánari lýsing eignarinnar:
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. sep. 2023
58.350.000 kr.
75.400.000 kr.
95 m²
793.684 kr.
18. jan. 2019
42.700.000 kr.
41.000.000 kr.
95 m²
431.579 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026