Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
svg

176

svg

149  Skoðendur

svg

Skráð  8. jún. 2026

einbýlishús

Bakkatjörn 1

800 Selfoss

106.900.000 kr.

452.200 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2185526

Fasteignamat

113.400.000 kr.

Brunabótamat

125.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1992
svg
236,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 12. júní 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Bakkatjörn 1, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd föstudaginn 12. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali og Hús fasteignasala, kynna í einkasölu eignina Bakkatjörn 1, 800 Selfoss. Um er að ræða fimm herbergja einbýlishús á frábærum stað á Selfossi, óhindrað útsýni að Ingólfsfjalli.

*Afhending eignar getur farið fram við mánaðamót júní/júlí 2026.*

Húsið er timburhús, byggt árið 1992 með tvöföldum bílskúr. Húsið skiptist í einbýlishús 183,5 m2 og bílskúr 52,9 m2 samtals 236.4 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

*  Nýlegur 7 manna saltvatns rafmagnsheitapottur frá Heitum pottum með loklyftu og tröppum *


Skipulag eignar: Forstofa, fjögur svefnherbergi, svefnherbergisgangur, stofa, sólstofa, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, háaloft, bílskúrsgangur og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa var tekin í gegn árið 2022 og er mjög rúmgóð.
Gestasalerni er inn af forstofu þar var allt gert upp árið 2025. Flísar á gólfi, fíbó plötur á veggjum, upphengt salerni og vaskur. 
Eldhús: Sérsmíðuð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi úr hlyn og mahogany frá Við og við. Gegnheil viðar borðplata úr mahogany. Nýlegt helluborð frá
IKEA. Nýlegur Miele ofn í vinnuhæð, háfur frá Blomberg. Rými fyrir ísskáp er innbyggt í eldhúsinnréttingu. Mósaík flísar á veggjum milli skápa. Rúmgóður
borðkrókur og tengi fyrir uppþvottavél við vask.
Stofa er mjög rúmgóð og opin. Skiptist í sjónvarpshol og borðstofu með viftu í lofti.
Sólstofa er inn af stofu og snýr til suðurs. Útgengt út á timburverönd.
Svefnherbergisgangur og hol með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýuppgerðu fataherbergi. 
Barnaherbergin eru tvö, bæði með þreföldum fataskáp.
Geymsla/forstofuherbergi nýtt sem þriðja barnaherbergi. Rúmgott með tvöföldum fataskáp. 
Baðherbergi er rúmgott með baðkari og opnum sturtuklefa með gleri og steyptum sturtubotn . Upphengt salerni. Flísar á gólfi, inn í sturtuklefa og á vegg við
baðkar. Upprunaleg innrétting með vaski. Gluggi með opnanlegu fagi. Gólfhiti.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Gott vinnupláss, upphengdar þvottasnúrur og vaskur. Pláss fyrir tvær vélar undir borði. Útgengt út á timburverönd.
Háaloft er yfir þvottahúsi. Gott aðgengi með fellistiga.
Bílskúrsgangur er með flísum á gólfi og gólfhita. Innangengt úr þvottahúsi og inn í bílskúr. Rafmagnstafla og lagnagrind. Upphengdar þvottasnúrur.
Bílskúr er rúmgóður með máluðu steyptu gólfi og gólfhita. Heitt og kalt vatn. Bílskúrshurðaopnari og fjarstýring fylgir. Tvær bílskúrshurðir en búið er að klæða fyrir aðra þeirra. Útgengt að vestanverðu út í garð og að norðanverðu út á bílaplan.
Upptekin loft í öllu húsinu.
Skipt hefur verið út öllum ónýtum vindskeiðum.
Gluggar og gler hefur verið endurnýjað.


Gólfefni: Gegnheilt parket er á barnaherbergjum, geymslu/forstofuherbergi, í stofu, sólstofu og eldhúsi. Flísar eru í forstofu, svefnherbergisgangi, þvottahúsi, á baðherbergjum og bílskúrsgangi.
Hurðir: Nýlegar hurðir og hurðakarmar innandyra frá Birgisson eru í öllu húsinu. Skipt um sumarið 2022.
Lóðin er að flatarmáli 756,1 m2. Húsið er timburklætt og garðurinn er gróinn. Rúmgóð timburverönd með skjólgirðingu er við suðvesturenda hússins, rúmur 30 m2 að sögn seljanda. Steypt stétt er fyrir framan hús og möl í bílaplani.
Vel skipulögð og rúmgóð eign. Frábær staðsetning á vinsælum stað á Selfossi þar sem stutt er í verslanir og þjónustu, leikskóla og skóla, einstakt tækifæri til að eignast vel skipulagt fjölskylduhús. Ekkert mannvirki stendur til norðurs við eignina en þar er opið svæði með tjörn og útsýni til fjalla.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur [email protected]

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"  


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum