Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
fjölbýlishús

Laugarnesvegur 112

105 Reykjavík

74.500.000 kr.

817.783 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015999

Fasteignamat

66.050.000 kr.

Brunabótamat

40.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
91,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 11. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Laugarnesvegur 112, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 05. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög fallega og mikið endurnýjaða 3. herbergja endaíbúð á 1. hæð (gengið upp hálfa hæð) með suðursvalir við Laugarnesveg 112 í Reykjavík. Uppgefin stærð er 91,1 fm. Íbúðin er skráð 86,6 fm samkvæmt HMS, en þar af er 4,5 fm geymsla í kjallara. Húsið hefur fengið gott viðhald. 
Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og þvottahús. Útsýni er úr stofu yfir Laugarnesið og Engey að Snæfellsjökli. 

// Íbúðin mikið endurnýjuð.
// Íbúðin er einstaklega björt með glugga í 3 áttir.
// Nóg af stæðum fyrir framan og aftan hús.
// Stórar suðursvalir.
// Mjög góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
// Rafhleðslustöðvar á bak við hús.


Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

Íbúðin er sú eina á þessari hæð í stigagangi hússins. Alrýmið er bjart og opið, rúmgott þvottahús er í sameign og næg bílastæði fyrir framan húsið þar sem rafhleðslustöðvar eru m.a. til staðar. Frábær staðsetning, afar stutt í næsta leikskóla og skóla. Matvöruverslanir, sérverslanir við Laugalæk og Hrísateig, líkamsrækt og Laugardalslaug í göngufæri. 

Nánari lýsing:
Harðparket á öllum gólfum nema baðherbergi þar sem eru flísar. 
Nýlegar rúllugardínur frá Álnabæ í öllum herbergjum nema baðherbergi þar sem er filma á glugga. 
Forstofa og gangur: Tveir PAX fataskápar á gangi. 
Eldhús: Falleg innrétting með miklu skápa- og borðplássi. Sérsmíðaðar vegghillur í stað efri skápa. Bakaraofn frá Siemens í vinnuhæð. Borðkrókur með innbyggðum setubekk. 
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt, útgengi út á stórar svalir sem snúa til suðurs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum, falleg innrétting með speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn, hiti í gólfi og baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi: Rúmgott, innbyggður skápur með miklu plássi. Nýr ofn og listi fyrir myrkragardínur til viðbótar við rúllugardínur. 
Barnaherbergi: Gott barnaherbergi, nýr ofn og listi fyrir myrkragardínur.
Geymsla: Er 4,5 fm og er í kjallara ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.   
Þvottahús: Er í sameign og er stórt og mjög snyrtilegt. Íbúð er með sér pláss fyrir þvottavél og þurrkara, einnig er sameiginleg þvottavél sem má nota.

Framkvæmdasaga íbúðar í eignartíð núverandi eigenda:
2026: Skipt um blöndunartæki í sturtu og baðvaski. Skipt um klósettsetu.
2025: Skipt um ofna í svefnherbergjum.
2024: Ný hurð í minna svefnherbergi.
2022: Svefnherbergisskápa hurðir sprautaðar hjá Húsgagnasprautun Jóhannesar og nýjar höldur settar á.
2022: Nýr spegilsskápur settur upp á baðherbergi og skipt um höldur á baðherbergisinnréttingu. 
2022: Nýjar gardínur í alla glugga frá Álnabæ. Screen í stofu, eldhús og minna svefnherbergi. Myrkvunargardínur í hjónaherbergi. Listar fyrir myrkvunartjöld í báðum svefnherbergjum frá Álnabæ. 

Framkvæmdasaga íbúðar í eignartíð fyrri eigenda:
2020: Veggur á baðherbergi var fjarlægður í heild sinni eftir leka frá íbúð á efri hæð (þvottavélatengi gaf sig þar), lagnir myndaðar og metnar, sagðar ok. Þær voru svo klæddar aftur að utanverðu, allt þurrkað vel, nýr veggur settur í stað þess gamla. Vörður tryggingafélag, GG lagnir og Aqurat sáu um framkvæmd.
2018: Nýtt harðparket á íbúð, nýjar hurðar og gereft frá Birgisson 
2018: Baðherbergi endurnýjað og gólfhitalagnir lagðar inn á baðherbergi. Tæki eru frá Tengi, Flísar frá Vídd.
2018: Ný eldhúsinnrétting og bakaraofn frá Siemens, innrétting frá KVIKK, eldhústæki frá Rafha. 
2018: Skápur á gangi endurnýjaður, PAX frá Ikea. 
2018: Ný rafmagnstafla í íbúð og tenglar endurnýjaðir.

Framkvæmdasaga húsfélags í eignartíð núverandi eigenda:
Húsfélag kaupir þrif á sameign og grasslátt í sameiginlegum garði. Húsfélagið er virkt og hefur árlega haldið vorhreingerningardag. 

2026: Í sameiginlegu þvottaherbergi er búið að endurnýja niðurföll og affallslagnir og endurnýja og yfirfara neysluvatnslagnir. Þá voru nýjar neysluvatnslagnir lagðar og rafmagn lagt og tengt í töflu fyrir fleiri vélar.
2025: Fráveitutenging við safnkerfi Veitna mynduð og fóðruð.
2025: Veitur endurnýjuðu heimæð í köldu vatni og settu upp nýtt inntak í hjólageymslu.
2025: hitaveitulagnir í inntaksrými yfirfarnar af pípara en ekki talin þörf á endurnýjun strax. Kaldavatnslagnir yfirfarnar en ekki talin þörf á endurnýjun strax. Hægt var að meta þar sem gamlar lagnir voru fjarlægðar þegar Veitur færðu inntak.
2025: Útihurð í 112 inngang pússuð og lökkuð.
2025: Sandkassi lagfærður og skipt um sand.

Framkvæmdasaga húsfélags í eignartíð fyrri eigenda:
2020: Slökkvitæki í sameign endurnýjuð og nýir samtengdir reykskynjarar í stigahúsum endurnýjaðir.
2020: Hjólageymsla tekin í gegn og settar festingar fyrir reiðhjól
2020: Grænmetiskassar settir upp í sameiginlegum garði og er þessi íbúð ein af þátttakendum í því verkefni. Bekkir og borð keypt í garðinn.
2018: Sprunguviðgerðir, vatnskantar lagaðir og útveggir málaðir. Svalaloft hreinsuð og máluð. Gluggar metnir og skipt um þá sem þurfti, gler endurnýjuð þar sem þörf á og aðrir viðgerðir og að lokum málaðir með þekjandi viðarvörn. Velflestir gluggar á austurhlið endurnýjaðir (bakhliðin). Þakið var yfirfarið og málað, rennur endurnýjaðar. Tröppur múrviðgerðar og filteraðar.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. nóv. 2021
40.650.000 kr.
57.000.000 kr.
91.1 m²
625.686 kr.
6. júl. 2018
35.750.000 kr.
39.500.000 kr.
91.1 m²
433.589 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone