Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
93,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýlegu lyftuhúsi. Íbúðin er merkt 07-0108 og henni fylgir sérafnotareitur til suðurs ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara, merkt N017. Íbúðin er alls 93,8 fm að stærð, þar af 7,7 fm sérgeymsla í sameign. Skipulag hennar er einstaklega gott og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Úr stofu er útgengt á sólríkan sérafnotareit sem snýr til suðurs.
Nánari lýsing:
Við inngang tekur á móti bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda og glæsilega heild. Eldhúsið er með vandaðri hvítri innréttingu, eyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakarofn er staðsettur í vinnuhæð og fallegur steinn prýðir borðplötur, undirfelldur vaskur. Gólfhiti er í alrými íbúðar
Til hægri við inngang er forstofurými með góðum fataskápum ásamt sérsmíðuðu skrifborði og opnum hillum. Þaðan er gengið inn á baðherbergi sem er flísalagt með ljósum flísum á gólfi. Þar er rúmgóð sturta með flísalögðum veggjum, falleg innrétting, speglaskápur og upphengt salerni. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergið er einnig vel skipulagt og með tvöföldum fataskáp.
Úr stofu er gengið út á sólpall sem snýr til suðurs og býður upp á skjólgott útisvæði til útiveru og samveru og vísar inn í lokaðan sameiginlegan garð með leiktækjum og grænum svæðum.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla og merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða íbúð á eftirsóttu Hlíðarendasvæði. Staðsetningin er frábær, í næsta nágrenni við útivistarsvæði Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur, auk þess sem stutt er í háskólasamfélagið, Landspítala og alla almenna þjónustu og verslanir.
Nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767 5555 eða með tölvupósti á [email protected].

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jan. 2020
23.100.000 kr.
49.900.000 kr.
93.8 m²
531.983 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026