Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, eldhús, stofa/borðstofa, baðherbergi,þvottahús/geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með góðum fataskáp, flísar eru á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stór og góð stofa er í opnu rými með eldhúsi. Stórir gólfsíðir gluggar eru í stofu og svalahurð út á rúmlega 20fm pall til austurs. Parket er á gólfinu, innbyggð lýsing í loftum.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með heimilistækjum frá AEG, helluborð og gufugleypir eru í eyju, bakarofn í vinnuhæð, uppþvottavél (frontur framan á er til), gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu (ísskápur fylgir ekki). Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með miklu skápa og skúffuplássi, upphengt salerni, walk in sturta, handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi III: Rúmgott og bjart herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús er inn af bílskúr, innrétting og vélar í vinnuhæð.
Geymsla: Er í sameiginlegu rými með þvottahúsi inn af bílskúr. Þar er hurð til að komast á pallinn sem er bakvið hús. Um er að ræða um 80fm pall til vestur.
Bílskúr: Rúmgóður og snyrtilegur bílskúr, epoxýgólfefni, grind fyrir gólfhitakerfið, stýringar eru í öllum herbergjum fyrir gólfhita. Rafdryfinn hurðaopnari á bílskúrshurð, einnig er inngöngu hurð á bílskúrnum.
Bílaplan: Stórt bílaplan með möl.
Að sögn eiganda:
Búið er að setja snjógildru á vestur hlið þaksins.
Pallur framan við hús var byggður sumarið 2021.
Falleg eign sem vert er að skoða, fallegt fjölskyldu heimili í grónu hverfi í Þorlákshöfn. Eignin er tóm og getur verið afhent við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Árnadóttir, löggildur fasteignasali. 697-6288 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.