Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
raðhús

Otrateigur 18

105 Reykjavík

149.900.000 kr.

982.951 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2017003

Fasteignamat

134.000.000 kr.

Brunabótamat

74.960.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1962
svg
152,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 12. júní 2026 kl. 12:00 til 13:00

Opið hús: Otrateigur 18, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd föstudaginn 12. júní 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali s. 8998815 eða [email protected]

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum á gróinni og skjólsælli lóð á frábærum stað í Laugardalnum. Sérsmíðaðar innréttingar. Bílskúr. Frábært og fjölskylduvænt hús á eftirsóttum stað. 

*** Sækja söluyfirlit ***

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] 

Um er að ræða nánar tiltekið Otrateig 18, 105 Reykjavík, F2017003. 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 152,5 fm, þar af er íbúðarrými 128,5 fm, bílskúr er skráður 24 fm. Íbúðarrými hússins skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, snyrtingu og sér þvottahús á neðri hæð. Útgengt er á timburverönd og í garðinn um tvöfalda hurð frá stofu. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Suður svalir eru út frá hjónaherbergi á efri hæð. 

Neðri hæð:
Anddyri er með fataskápum. Flísar á gólfi. Gólfhiti og ofn. 
Þvottahús er inn af anddyri. Snyrtileg hvít innrétting frá IKEA (2019) sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. Opnanlegur gluggi. 
Snyrting er með upphengdu salerni og handlaug. Flísar á gólfi. Endurnýjað 2023. 
Eldhús er lokað, rúmgott með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Við og við. Klassísk eikarinnrétting brotin upp með hvítum efri skápum. Gott vinnu- og skápapláss og góður borðkrókur. Vönduð eldhústæki frá Siemens. Gashelluborð. Flísar á gólfi. Gólfhiti. 
Stofa og borðstofa eru í björtu rými með stórum gluggum í suður. Sérsmíðuð innrétting / bókahilla frá Við og við. Útgengt er á timburverönd um tvöfalda hurð úr stofunni. 

Efri hæð:
Gengið er upp parketlagðan stiga með viðarhandriði á efri hæðina. 
Svefnherbergi 1 er ekki með skápum. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2 er með sérsmíðuðum fataskáp frá Við og við. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með sérsmíðaðri eikarinnréttingu frá Við og við. Tvær skúffur og skápar. Granít á borðum. Handlaug. Upphengt salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar í hólf og gólf, dökkar flísar á gólfi og hvítar á veggjum. Innfelld lýsing. Gólfhiti. Handklæðaofn. 
Svefnherbergi 3 er hjónaherbergi með sérsmíðuðum fataskáp frá Við og við. Parket á gólfi. Útgengt er á suður svalir úr herberginu.
Svefnherbergi 4 er með sérsmíðuðum fataskáp frá Við og við. Parket á gólfi. 

Bílskúr er snyrtilegur, 24 fm og með gluggum. Hörmann innkeyrsluhurð (með inngönguhurð) og mótor (nýendurnýjuð hurð frá 2025). Heitt og kalt vatn. Steypt gólf. Hellulagt bílastæði er fyrir framan bílskúrinn. Snjóbræðsla er í planinu og í hellulögðum göngustíg upp að húsinu (ekki í útitröppum). EO rafhleðslustöð fylgir með. 

Húsið hefur fengið reglubundið og gott viðhald. Yfirlit yfir helstu framkvæmdir og endurbætur á liðnum árum að sögn eiganda:
Ný bílskúrhurð 2025. 
LED lýsing 2025. 
Utanhússviðgerðir 2024: múrviðgerðir og málað, tréverk pússað og málað. Útitröppur og handriði.
Snyrting endurnýjuð 2023.  
Hellulögn og hiti í plani við bílskúr 2021. 
Nýtt þakjárn á bílskúr 2019. 
Þvottahús endurnýjað 2019. Ikea innrétting. 
Kährs harðparket og gólfhiti í stofu 2019. 
Töluvert af gluggum endurnýjaðir og svalahurð efri hæðar og hurð út á verönd úr stofu 2019. 
Frárennslislagnir frá baðherbergi og út fóðraðar 2012. 
Baðherbergi alveg endurnýjað 2009. Sérsmíðað af Við og við innréttinga og trésmíðaþjónustu. Steinn á borðum. 
Timburverönd smíðuð 2007. 
Eldhús endurnýjað 2006. Sérsmíðað af Við og við innréttinga og trésmíðaþjónustu. Steinn á borðum. Siemens tæki.
Raflagnir, ný rafmagnstafla og dregið í allt húsið 2004. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík