Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
160,1 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir eignina Ennishvarf 15C, 203 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 02-01. Samkvæmt Þjóðskrá er birt stærð eignarinnar 160.1 fm, þ.a bílskúr 25,3fm. Fasteignamat eignarinnar fyrir 2027 er 119.900.000 kr.  Íbúðin er upphaflega skráð með þremur herbergjum en fjórða herberginu bætt við. Tvö baðherbergi, tvær svalir í sitthvora áttina og gluggar sem vísa í fjórar áttir.  Rúmgóður bílskúr fylgir. 
Eigninni hefur verið vel viðhaldið og er í góðu ástandi. Tvær íbúðir í húsinu. Húsið er álklætt og viðhaldslítið.

Nánari lýsing

Inngangur inn í húsið er með nýlegu skýli. Sameiginlegur bjartur stigagangur, með gluggum, hljóðdúkur er í loftinu fyrir dempun hljóðs, stiginn er teppalagður
Anddyri og gangur er með rúmgóðum skápum, nýmálað, með flísum á gólfi
Svefnherbergi 1 - Hjónaherbergi með skáp og parket á gólfi
Svefnherbergi 2 - Herbergi með skáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi 3 - Herbergi með skáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi 4 - Herbergi með skáp og parketi á gólfi
Baðherbergi 1 - Er rúmgott með ljósri innréttingu og skáp. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Baðherbergi 2 - gestasalerni með innréttingu
Stofa er með niðurtekið loft fyrir ljós. Parket á gólfi.  Útgengt á svalir með góðu útsýni. Hillur í stofu fylgja ekki með.
Eldhús er rúmgott með góðum borðkrók og útgengi út á yfirbyggðar svalir. Innrétting úr eik frá HTH með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting með vaski. Góð loftræsting.
Geymsla er innaf sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu, er u.þ.b. 3-4 fm
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á jarðhæð.
Bílskúr er rúmgóður og nýtist vel. Upphaflega var gert ráð fyrir 7.1 fm geymslu innst í bílskúr, en sá möguleiki er ekki nýttur núna. Góð loftræsting er í bílskúrnum, sem seljandi setti upp, einnig er gert ráð fyrir hleðslu rafmagsbíls. Bílskúrar voru málaðir fyrir 5 árum. 
Bílastæði eru næg, hleðslustaur fyrir rafmagnsbíla er sameiginlegur í bílastæði.
Garður er sameignlegur og er stór með leiktækjum. 

Teikningar ekki í samræmi við núverandi skipulag íbúðar
Íbúðin er að mestu upprunaleg, einnig dren, þak og raf- og vatnslagnir
Glerlistum var skipt á flestum gluggum fyrir 3 árum.
Vatnsendaskóli er í nágrenni, einnig leikskólinn Sólhvörf. Önnur þjónusta og verslanir eru í næsta nágrenni.  Róleg botngata og fallegt umhverfi með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone