Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2016
94,3 m²
3 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Laus strax
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Jaðarstún 12 - 202
**Laus til afhendingar við kaupsamning**
Virkilega vel skipulögð og björt 3-4 herbergja íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða nýlegu húsi á vinsælum stað nyrst í Naustahverfi. Eignin er samtals 94,3 fm. auk þess eru góðar svalir sem snúa til vesturs.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, geymslu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa með flísar á gólfi og fataskápum.
Stofa og eldhús er í opnu og björtu rými þaðan sem er mjög gott útsýni. Parket á gólfum og mjög rúmgóð innrétting í eldhúsi þar sem innbyggð uppþvottavél og ísskápur, sem fylgja og bakaraofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er útgengt á svalir sem snúa til vesturs og eru flísalagðar.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfum og fataskápum.
Geymsla sem getur vel nýst sem svefnherbergi er einnig með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum á veggjum og dökkum á gólfi, innrétting í kringum vask, sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting í kringum þvottavél og þurrkara sem fylgja.
Annað:
-Uppþvottavél, ísskápur, þvottavél og þurrkari fylgja
-Allar gardínur sem eru til staðar fylgja einnig
-Sameiginleg geymsla í lagnarými er undir stigapalli
-Ljósleiðari
-Gólfhiti
-Samkv. eignaskiptasamningi fylgja tvö stæði íbúðinni á sameiginlegum bílstæðum fyrir framan húsið
-Glæsilegt útsýni úr eigninni og af svölum
-Vinsæl staðsetning, rétt við golfvöllinn að Jaðri, matvöruverslun og stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. nóv. 2020
39.150.000 kr.
42.300.000 kr.
94.3 m²
448.568 kr.
11. mar. 2016
11.250.000 kr.
30.835.000 kr.
94.3 m²
326.988 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026