Lýsing
Miklaborg kynnir: Vel skipulagða og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Gnoðarvog 28 í Reykjavík. Stutt í almenningssamgöngur og alla þjónustu, verslanir, skóla, þ.á.m. framhaldskóla, og útvistarsvæði í Laugardalnum. Frábær fyrstu kaup, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu!
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8241965 eða [email protected]
Nánari lýsing: Komið er inn í hol með fatahengi, þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Eldhús með eldri innréttingu, borðkrók og glugga. Svefnherbergin eru tvö, rúmgott hjónaherbergi með skápum og annað minna herbergi. Stofan er björt og rúmgóð með útgengi á svalir í suðurvestur. Baðherbergið er með baðkari og glugga og flísum á veggjum. Á gólfum í holi og stofu er parket, korkflísar á eldhúsgólfi og dúkur á herbergjum og baðherbergi.
6,6 fm. geymsla í kjallara með hillum og glugga. Í sameign í kjallara er þvottahús með sameiginlegum þvottavélum og þurrkara, einnig þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla.
Að sögn seljanda var skipt um rafmagnstöflu í íbúðinni árið 2020, dregið nýtt rafmagn og öllum innstungum skipt út.
Á undanförnum árum hafa eftirfarandi endurbætur farið fram skv. upplýsingum frá húsfélagi:
2019 Þakrennur og niðurföll voru endurnýjuð ásamt steypuviðgerðum og heildarmálun á húsinu. Klæðning framan á húsi endurnýjuð ásamt gluggaskiptum á stórum hluta hússins. Skipt var um alla glugga í þessari íbúð, utan einn.
2020 Innkeyrsla gerð upp og dren- skólplagnir fyrir framan hús endurnýjaðar, einnig lagt fyrir snjóbræðslu.
2022 Skipt um rafmagnstöflu í stigangi nr. 28.
2024 Skipt um þakplötur að hluta og gert við ryðskemmdir á þaki.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8241965 eða [email protected]