Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2002
svg
224,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **   

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og bjart 224,8 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað við Súluhöfða 13 rétt við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Stórar timburverandir með heitum potti. Stórt steypt bílalstæði. Eignin er skráð 224,8 m2, þar af einbýli 166,5 m2 og bílskúr 58,3 m2.
Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, þvottaaðstöðu, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.
Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöllinn, Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, Lágafellslaug og World Class. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Forstofa er björt með fatahengi og flísum á gólfi. Stórir gluggar og þakgluggi gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á verönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt, með vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Stofan er rúmgóð með flísum á gólfi og mikilli lofthæð. Þakgluggi er í stofu sem gefur skemmtilega birtu inn í rýmið.
Eldhús og borðstofa er í björtu opnu rými með flísum á gólfi. Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Úr rýminu er útgengt út á timburverönd.
Þvottaaðstaða er í innbyggðum skáp við eldhúsið. Vaskur og innrétting, þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi, rafmagns bílskúrshurðaropnara. Rennandi vatn, hiti og rafmagn. Búið er að setja upp salerni innst í bílskúr.

Verð. kr. 177.500.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ