Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
57 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.

Lýsing

Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Asparskógar 9, 301 Akranes.

Fallegt 57 fm sumarhús með hitaveitu, gufubaði á glæsilegri sólríkri og gróinni lóð í Svarfhólsskógi
Einstaklega fallegt og vel umgengið sumarhús sem stendur á 4.670 fm gróðursælli leigulóð í landi Svarfhóls í Hvalfjarðarsveit (Svarfhólsskógi).
Svæðið er lokað með tveimur rafmagnshliðum (símahlið) sem tryggir gott næði og öryggi. Húsið stendur á steyptum súlum.


Lýsing:
  Forstofa: Með parketi á gólfi og fatahengi.
  Stofa: Björt stofa með frábærri lofthæð, kaminu sem gefur mikla notalegheitastemningu, parketi á gólfi og útgengi á stóran sólpall.
  Eldhús: Snyrtileg viðarinnrétting með góðum borðkrók. Bakarofn, helluborð og vaskur endurnýjað 2018 eða seinna. Parket á gólfi.
  Svefnherbergi: Tvö fín svefnherbergi á neðri hæðinni með parketi, annað þeirra með góðu skápaplássi.
  Baðherbergi: Með korkflísum á gólfi, innréttingu og sturtu. Vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta og nýleg blöndurnatæki í sturtu.
  Milliloft: Góður stigi liggur upp á rúmgott milliloft sem skiptist í hol og herbergi með flísaparketi og opnanlegu fagi.
  Gott viðhald: Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin, að innan sem utan.

Lóð, sólpallur og gufubað:
Stór og glæsilegur sólpallur með skjólgirðingu umlykur húsið.
Á lóðinni er ca. 6 fm geymsluskúr sem er tvískiptur:
  * Annar hlutinn er nýttur sem geymsla.
  * Hinn hlutinn hefur verið innréttaður sem gufubað (sauna).
Lóðin sjálf er kjarri vaxin og búið er að planta miklum trjágróðri. Frá eigninni er afar fallegt útsýni. Aðkoma er til fyrirmyndar og næg bílastæði eru við húsið. 

Möguleiki er á að fá innbú (fyrir utan persónulega muni) með í kaupum á eigninni eftir samkomulagi.
Árgjald sumarhúsafélagsins er um 30.000 kr.
Lóð: 4.670 fm leigulóð. Lóðarleigusamningur er til 25 ára frá árinu 2018. Lóðarleiga er um kr. 210.000 kr. á ári.

Eignin Asparskógar 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 223-3022, merkt 01-01, birt stærð 57.0 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Aðeins um 50 mínútna akstur er frá Reykjavík og hægt er að fá ódýrt veiðileyfi í Eyrarvatni, sem staðsett er rétt við húsið!

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
[email protected]
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. sep. 2018
15.150.000 kr.
17.500.000 kr.
57 m²
307.018 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.