Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1967
271,3 m²
7 herb.
5 svefnh.
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mikið endurnýjað og vel skipulagt einbýlishús á Flötunum í Garðabæ. Húsið er 271,3 fm samkvæmt skráningartöflu. Búið er að endurnýja eldhús og bæði baðherbergi, þar með talið lagnir og frárennsli. Hægt er að hafa fimm svefnherbergi í húsinu. Húsið virðist í góðu standi bæði að utan og að innan, sjá nánar hér að neðan.***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***
Lýsing eignar:
Húsið er byggt á steyptri botnplötu. Útveggir eru gerðir úr holsteini sem er einangraður að utan og klæddur með málaðri steniklæðningu, sem er mjög viðhaldslítil. Holsteinninn, þar sem klæðning hefur verið opnuð, er í mjög góðu ástandi. Engar sprungur eru inni í húsinu á útveggjum. Viðbygging (vinnustofa/herbergi) er timburhús (mikið endurnýjað) á steyptum undirstöðum. Bílskúr / geymsla (7 ára) er timburbygging á steyptri plötu með bræddum dúk og zinkklæðningu. Heilt yfir er húsið í mjög góðu standi en fyrir liggur að endurnýja þarf svalahurð auk smærri viðgerða á suðurhlið hússins sem stendur næst götunni.
Forstofan er nýlega endurnýjuð, flísalögð og með fataskápum.
Gengið er úr forstofu yfir í parketlagt hol.
Út frá holi er gengið inn í rúmgott 13 fm herbergi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi. Þær eru rúmgóðar og bjartar með gluggum til suðurs. Fallegur arinn er í setustofu og þaðan er einnig útgengi í um 25,0 fermetra skála. Flísar í skála eru nýlega endurnýjaðar og þá var settur gólfhiti. Garðskálinn er með tveimur stórum rennihurðum út á skjólsæla viðarverönd til suðurs.
Forstofan er nýlega endurnýjuð, flísalögð og með fataskápum.
Eldhús er opið við borðstofu, parketlagt og með virkilega fallegum og vönduðum, ljósum innréttingum og innbyggðum tvöföldum ísskáp og uppþvottavél. Vönduð tæki eru í eldhúsi (að mestu leyti Miele) og gott vinnupláss.
Baðherbergið hefur nýlega verið endurnýjað að öllu leyti. Snyrtileg innrétting með miklu skápaplássi. Vegghengt salerni. Rúmgóð „walk in“ sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Í sturturými er upphitaður bekkur til slökunar (hammam). Í baðherberginu er gólfhiti.
Gengið er inn í svefnherbergisálmu með hjónasvítu, tveimur svefnherbergjum, þvottahúsi og stóru herbergi þar sem er útgengt á pall til suðvesturs. Af gangi er einnig bakinngangur.
Hjónasvítan er einstaklega rúmgóð með fataherbergi og nýlega endurnýjuðu baðherbergi. Gluggar í tvær áttir í hjónasvítu og fastir skenkir á einum vegg ásamt innbyggðum hillum. Fataherbergið er með fataskápum á tveimur veggjum. Baðherbergið hefur verið nýlega endurnýjað að öllu leyti og er snyrtilegt með vegghengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni og sturtu. Baðherbergið er með gólfhita.
Eldri bílskúr hefur verið endurgerður og honum breytt í tvö ný svefnherbergi. Bæði svefnherbergin eru mjög rúmgóð (14 fm og 13,4 fm).
Vinnustofa/herbergi er með mörgum gluggum til suðurs, ofanbirtu og útgengi á aðra skjólsæla viðarverönd til suðurs. Auðvelt væri að nýta rýmið sem 1-2 svefnherbergi.
Þvottahús með glugga. Nýlega endurnýjað með góðum innréttingum, vinnuborði og vaski. Flísalagt gólf.
Flísalagt hol með ýmsa möguleika.
Búið er að endurnýja nær allar neysluvatnslagnir í húsinu og ofnalagnir yfirfarnar og endurnýjaðar eftir því sem þurfa þótti. Allar frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar með fóðrun. Öll inntök hafa verið endurnýjuð frá götu. Hitalagnir í innkeyrslu og stétt voru endurnýjaðar fyrir um 7 árum. Nýr bílskúr/geymsla hefur verið byggður. Vinnustofa/herbergi hefur verið mikið endurnýjuð, þar með talin suðurhlið og þak.
Nýlegur bílskúr er á lóð að framanverðu en hann er 17 fm og klæddur með sinkklæðningu. Þar að auki er geymsluskúr á lóð.
Garður hefur verið tekinn í gegn og nýr pallur settur upp með heitum potti. Pallurinn er úr síberíulerki og er viðhaldslítill. Pallur við norðurhlið hússins, næst götu, var endurnýjaður árið 2025. Hann er einnig viðhaldslítill. Lóðin er mjög falleg, ræktuð og gróin með hellulagðri innkeyrslu og stéttum fyrir framan húsið með hitalögnum undir og tveimur skjólsælum veröndum. Fallegur gróður og tyrfðar flatir eru á lóðinni. Nýtt, óupphitað garðhýsi hefur verið byggt.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson, s:824-9093 eða [email protected]
Unnar Kjartansson, s:867-0968 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. okt. 2017
64.200.000 kr.
108.000.000 kr.
226.4 m²
477.032 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026