Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
hæð

Nesvegur 43

107 Reykjavík

109.990.000 kr.

876.414 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2026643

Fasteignamat

92.100.000 kr.

Brunabótamat

65.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
125,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. júní 2026 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Nesvegur 43, 107 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 15. júní 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Falleg 4 herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Nesveg 43. Íbúðin er skráð 125,50 fm. Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur nálægt sjónum og með frábæru útsýni. Stutt í alla helstu þjónustu.

Eignin skiptist í: forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fasteignamat ársins 2027 er kr. 112.300.000


Eignin er á virkilega góðum stað í Vesturbænum nálægt sjónum. Íbúðin er vel skipulögð með rúmgóðri stofu og borðstofu, snyrtilegu eldhúsi, rúmgóðu hjónaherbergi ásamt tveimur öðrum herbergjum. Stór sameiginleg geymsla fylgir eigninni.

Nánari lýsing: 

Gengið er inn um sérinngang inn í parketlagða forstofu. Forstofan er rúmgóð.
Úr forstofu er gengið inn í parketlagt hol sem tengir saman allar vistverur íbúðar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu með handlaug. Góð þvottaaðstaða með nægu plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðkar með innfelldum blöndunartækjum.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott og með glugga á tvo vegu. Parketlagt.
Tvö barnaherbergi, bæði rúmgóð og annað þeirra með fataskáp. Parketlögð.
Stofa og borðstofa eru afar björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu, útsýni til sjávar. Parket á gólfi. Útgengt á timburverönd til suðurs. Frá timburverönd er gengið inn í skjólgóðan og fallegan garð til suðurs.
Eldhús er opið að stofu, með dökkri eldhúsinnréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Steinn á borðum og á milli skápa.  

Sameiginleg geymsla er með sérinngangi frá götu. Þar hafa einnig verið stúkaðar af tvær sérgeymslur, eina fyrir hvora eign. Geymslan er ekki innifalin í skráðum fermetrum eignarinnar.

Miklar endurbætur hafa verið innan íbúðar og má m.a. nefna endurbætur 2021-2022: innrétting á baðherbergi, ofnar inn í hjónaherbergi og stofu, eldhúsinnrétting og heimilistæki, parket á gólfum var endurnýjað.

2020-2021 var farið í umfangsmiklar endurbætur á ytra byrði hússins en meðal annars hefur þakjárn hússins verið endurnýjað ásamt borðaklæðningu og þakpappa, útveggir filteraðir, sílanbaðaðir og málaðir, útidyr, svalir, svalahurðir og þakrennur endurnýjaðar og skipt um glugga og gler sem þurfti. Auk þess var húsið drenað á austur- og norðurhlið árið 2017. Síðan 2021 hafa verið gerðar miklar umbætur í garðinum, grasblettur var stækkaður, útbúin blómabeð og settur upp matjurtagarður. Auk þess var sett grindverk fyrir framan hús og á lóðamörkum austan og vestan megin 2023.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í s:867-0968 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. júl. 2021
55.750.000 kr.
71.900.000 kr.
125.5 m²
572.908 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík