Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Akurgerði 5

108 Reykjavík

123.900.000 kr.

1.013.912 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2034408

Fasteignamat

102.700.000 kr.

Brunabótamat

63.790.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1961
svg
122,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **   

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Fallegt og vel skipulagt 122,2 m2, 4-5 herbergja sérbýli á tveimur hæðum við Akurgerði 5, 108 Reykjavík. Frábært fjölskylduhús. Fallegur afgirtur skjólgóður bakgarður með geymsluskúr og stórri timburverönd (um 50 m2) í suðurátt, þar sem sólar nýtur frá morgni til kvöld. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er fyrir frama húsið. Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa. Milligang. Bílskúr sem skiptist í herbergi og geymslu/þvottahús. Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, geymsla og baðherbergi. Eignin er skráð 122,2 m2, þar af íbúðarrými 102,7 m2 og bílskúr 19,5m2. 
Frábær staðsetning á rólegum stað, þar sem er stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og alla helstu þjónustu.


Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá seljanda: Árið 2013-2014 var sett nýtt frárennsli frá húsum í botnlanga út í götu, nýir brunnar, malbik á botnlanga. Árið 2014 var baðherbergi endurnýjað. Lögn fóðruð út í brunn (proline). Árið 2016-2017 var þak endurnýjað (nýtt aluzink, pappi, klæðning, viðgerðir á stoðum, nýjar flasningar og rennur). Nýtt eldhús og gólfefni í eigninni. Ný svalahurð á jarðhæð sett. Geymsluskúr settur í garð. Árið 2016 og 2018 voru pallar byggðir. Árið 2019 var þak á bílskúr endurnýjað (nýtt aluzink, pappi, klæðning, flasningar) og sett plexigler yfir milligang (á milli hússins og bílskúrsins). Árið 2020 var sett klæðning á framhlið bílskúrs. Árið 2021 klæðning á loftið í bílskúr. Árið 2022 var sett þak á inngang. Árið 2024 voru gluggar yfirfarnir í herbergjum uppi, baði og eldhúsi út að bílastæði. Árið 2025 var gerður skjólveggur og pallur við Akurgerði.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi. 
Hol er með parketi á gólfi.
Stofan og borðstofa eru í björtu rými með parketi á gólfi. Gengið er úr rýminu út á timburverönd í bakgarði.
Eldhús er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Falleg hvít eldhúsinnrétting frá Kvik með extra djúpum skúffum og góðu geymsluplássi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og háfur. 
Milligangur á milli bílskúrs og íbúðarhússins er með flísum á gólfi. Er ekki í fermeratölu eignarinnar, var útisvæði sem búið er að byggja yfir með plexígleri og loka.
Bílskúr er í dag nýttur sem herbergi og geymsla/þvottahús.
Stigi
upp á efri hæðina og gangur efri hæðar eru með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Geymsla er á gangi.
Baðherbergi er flísalagt, með vegghengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og handlaug. Gluggi er á baðherbergi.

Verð. kr. 123.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ