Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
142 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og rúmgóða 3.herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Bjarkarás 15 á besta stað á Garðabæ. Stór verönd frá stofu með skjólveggjum til suðurs. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Einnig fylgir 4,6 m2 útigeymsla. Birt stærðar eignar er 142 m2 , þar af útigeymsla 4,6 m2.

Nánari lýsing eignar 
Forstofa
með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi .
Stofa og borðstofa er mjög björt og rúmgóð með parketi á gólfi með útgengi út stóra verönd með skjólveggjum til suðurs.
Eldhúsið er opið inn í stofu með  innréttingu með efri og neðri skápum með góðu skápaplássi og graníti á borðum, keramik helluborð með viftuháf yfir, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu
Þvottherbergi og geymsla er innaf eldhúsi, góð innrétting með skolvaski, flísar á gólfi. 
Baðherbergið er rúmgott með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar, sturta,  innrétting með granítborðplötu með tveimur vöskum,  handklæðaofn og innfeld lýsing.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Útigeymsla ( 4,6 m2 ) með hillum.

Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Framkvæmdir og endurbætur síðustu ára á íbúð. 
Eigendur hafa lagt áherslu á gott viðhald og endurbætur á íbúðinni. Parket hefur verið pússað og lýst upp, flísar á vegg í eldhúsi málaðar í steingráum lit og skjólveggur reistur á verönd árið 2022. Þá var skipt um öll blöndunartæki á baðherbergi í júní 2026.

Á undanförnum árum hefur einnig verið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir á sameign hússins, þar á meðal endurbætur á þaki með endurnýjun blikklista og yfirferð á dúk, múrviðgerðir ásamt endurbótum á tröppum og svalagólfi, endurnýjun á hurðum í geymslu og íbúð, auk uppsetningar rafhleðslustöðva. Sameign hússins hefur því fengið gott viðhald á síðustu árum.

Stutt í alla þjónustu, s.s skóla, íþróttahús, sundlaug og verslanir. Bjarkarás 15 er virkilega falleg íbúð og vel staðsett í rólegu Ásahverfi í Garðabæ. Stutt í þjónustu og gott aðgengi að stofnbrautum í allar áttir. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2020
98.250.000 kr.
68.000.000 kr.
50103 m²
1.357 kr.
18. maí. 2007
98.250.000 kr.
182.838.000 kr.
50103 m²
3.649 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone