Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1992
103,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Stefán Jarl lgf. og Erling Proppé lgf. kynna ásamt RE/MAX: Sérlega glæsilega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu á friðsælum stað við Flétturima 25. Eignin hefur gengist undir miklar endurbætur með arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi en hönnun er frá virtum arkitekt frá Brasilíu að nafni Julliana Wagner. Þar var m.a. endurnýjað gólfefni, rafmagn, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðar. Íbúðin einkennist af nútímalegum lausnum og vönduðu efnisvali sem skapar heildstæða og hlýlega upplifun. Bjart og opið alrými tengir eldhús, borðstofu og stofu saman, með útgengi á suðursvalir sem snúa að skjólsælum bakgarði. Tvö svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi og rúmgott þvottahús, allt hannað með notagildi og fagurfræði í huga. Þessi vandaða eign býður upp á þægilegt og fjölskylduvænt umhverfi, með greiðan aðgang að þjónustu og grænum svæðum í nágrenninu
Eignin er skráð skv. fasteignamati HMS 103,1 m2, þar af eru íbúðarfermetrar 90,6 m2 og stæði í bílageymslu skráð 12,5 m2 .
Aðalrými og inngangur
Hlýleg hönnun einkennir þetta bjarta og opna rými þar sem anddyri, eldhús, borðstofa og stofa mynda heildstæða og notalega umgjörð.
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur er við innganginn.
Eldhús: Glæsilegt eldhús með arkitektahönnun, dökkum innréttingum og stílhreinum, ljósum borðplötum úr kvartsi. Stór eldhúseyja með barstólum beggja megin. Steinplötur eru á veggjum milli efri og neðri skápa, ásamt fallegri panelklæðningu í lofti sem rammar inn svæðið. Ríkulegt náttúruljós auk Led vinnulýsingar. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi. Stofa og borðstofa tengjast eldhúsi í opnu flæði og eru með stórum gluggum sem veita mikla náttúrulega birtu og útgengi á svalir. Hluti af vegg í stofu er klæddur fallegum viðarpanel og steinplötu.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fallegri panelklæðningu á einum vegg sem gefur herberginu hlýlegan blæ. Góðir skápar eru í herberginu.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi, hlýlegu veggfóðri og góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað baðherbergi í arkitektahönnun með stórum marmaramynstruðum steinflísum á gólfi og veggjum. Svört blöndunartæki, sturta með glervegg, innrétting með frístandandi handlaug og upphengdu salerni. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, góðu vinnuplássi á borðplötu, subway flísum á vegg og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nýtist vel sem geymsla innan íbúðar.
Svalir: Suðursvalir með harðviðarflísum á gólfi. Hér er pláss fyrir útihúsgögn og grill.
Umhverfi og staðsetning: Íbúðin er staðsett í rólegu og grónu hverfi með grænum svæðum í kring. Nægt bílastæði er við húsið og stutt í helstu þjónustu, skóla og afþreyingu.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu asamt sérmerktu stæði beint fyrir utan inngang hússins. Einnig fylgir pláss í sameiginlegri dekkjageymslu í bílakjallara.
Sameign: Nýlegur myndavéladyrasími ásamt öryggismyndavélum við aðalinngang og inngang frá bakgarði í gegnum hjólageymslu.
Viðhald og endurbætur
Helstu framkvæmdir 2021: Íbúðin var að mestu endurnýjuð á miðju ári 2021. Þar var gerð arkitektahönnun á alrými, eldhúsi og baðherbergi. Einnig voru gólfefni, rafmagn, eldhús, baðherbergi, allar innréttingar og hurðar endurnýjaðar. Grófir hraunveggir voru heilspartlaðir og gólf flotuð. 2025 var járn og pappi á þaki endurnýjað.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. maí. 2021
42.150.000 kr.
50.500.000 kr.
103.1 m²
489.816 kr.
14. maí. 2019
36.850.000 kr.
38.000.000 kr.
103.1 m²
368.574 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026