Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilega nýja 2ja herbergja 76,1 m2 íbúð (merkt 103) á jarðhæð sem sérinngangi í endurbyggðu húsi við í Heiðargerði 22 á Akranesi. Eignin er skráð 76,1 og skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús. Um 23 m2 sérafnotareitur í norðausturátt tilheyrir eigninni. Um er að ræða hús byggt 1969 en hefur verið endurbyggt að mestu. Íbúðin afhendist fullbúin í lok júní 2026. Fallegar innréttingar og gólfefni. Gólfhiti með þráðlausri stýringu. Eitt bílastæði á lóð fylgir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísum á gólfi, innréttingu, 'walk in' sturtu og vegghengdu salerni.
Þvottahús með parketi á gólfi og innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptan sérafnotareit (um 23 m2).
Eldhús er með fallegri innréttinu. Í innréttingu er helluborð, ofn og vaskur. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp. Úr svefnherbergi er gengið út á steyptan sérafnoareit.
Verð kr. 66.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.