Lýsing
SMELLTU HÉR TIL AÐ NÁLGAST SÖLUYFIRLIT
Miðhæðin:
Komið er inn forstofu - flísar á gólfi.
Baðherbergi - flísar á gólfi - nýleg innrétting - baðkar með sturtuaðstöðu - stór gluggi.
Eldhús - nýr vínilparket á gólfi - fín innrétting - keramikk helluborð - flísar milli efri og neðri skápa - stigi á jarðhæð.
Stofa / Borðstofa - nýr vínilparket á gólfi - rúmgóð og björt - góðir gluggar.
Risið:
Hjónaherbergi - parketdúkur á gólfi - rúmgott.
Jarðhæðin:
Stigi handan við eldhús.
Herbergi - góð lofthæð - hægt að loka og nýta sem svefnherbergi - vínilparket og hiti í gólfi.
Þvottahús - rúmgott og bjart - góð lofthæð - hillur - málað gólf - gluggar á tvo vegu.
Útgengt á sólpall í baklóð.
Húsið hefur á síðustu árum mikið verið tekið í gegn. Árið 1996 var nýtt rafmagn dregið í húsið ásamt pípulögnum. Árið 2017 var jarðhæðin öll múruð að utan og máluð. Sama ár var sett nýtt járn á þakið og nýr þakpappi og skipt um þær sperrur sem þurfti. Árið 2019 var smíðaður nýr sólpallur með skjólveggjum. Árið 2023 var mokað frá öllu húsinu og sett drenlögn, tappadúkur ásamt jarðvegsdúk og ný möl. Einnig var allur sökkullinn tjargaður. Sama ár var bílaplan hellulagt og settur hiti í það.
Stutt er í skóla og leikskóla sem og góð útivistarsvæði á Víðistaðatúni og Hellisgerði. Einnig er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.