Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Búðagerði 5

108 Reykjavík

119.800.000 kr.

730.933 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2034546

Fasteignamat

95.600.000 kr.

Brunabótamat

81.620.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
163,9 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Stór íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli með stúdíóíbúð í kjallara og aukaíbúð í bílskúr í 108 Reykjavík.

Sérlega falleg og björt eign, þ.e. 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð, efstu hæð auk bílskúrs (nýlega breytt í íbúð) og auka herbergi (stúdíóherbergi) með aðgangi að baðherbergi í kjallara.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Íbúðin á hæðinni er 114,7 fm, íbúðarherbergi í kjallara 23,9 fm, geymsla í kjallara 6,4 fm og bílskúr (Stúdíóíbúð) sem er 24,6 fm.

Alls er því samtals birt stærð 163,9 fm.

Allar þrjár einingarnar hafa verið í útleigu og því mjög góðar leigutekjur.

Mjög góð staðsetning í vinsælu hverfi, er eignin í litlu fjölbýli, samtals 4 íbúðir í stigagangi.

Möguleiki á fjármögnun til lögaðila frá www.imirox.com, upplýsingar fást hjá fasteignasala.

Nánari lýsing:
Eignin skiptist í hol, fallegt eldhús með nýlegum innréttingum og tækjum, falleg borðstofa við eldhús með stórum glugga, tvær bjartar stofur þ.e. stofa og borðstofa, útgengt á v-svalir.
Svefngangur: rúmgott hjónaherbergi með skáp og stórt barnaherbergi (eru tvö herbergi á teikningu en hafa verið sameinuð í 1 stórt) - auðvelt að breyta aftur í 2 barnaherbergi.
Nýlegt baðherbergi, baðkar með sturtuaðstöðu, falleg innrétting, gluggi.
Rúmgóður skápur á gangi, einnig annar skápur þar sem þvottavél/þurrkari er í.

Í sameign er góð sérgeymsla, og rúmgott sameignlegt þvottaherbergi og baðherbergi með sturtuaðstöðu. Parket og flísar á gólfi.

Bílskúr/studio íbúð 24,6 fm: nýlega innréttuð með baðherbergi. Gönguhurð/sérinngangur. Íbúðin er í útleigu.

Kjallari: Rúmgott íbúðarherbergi 23,9 fm með eldhúskrók í opnu rými. Sameignlegt baðherbergi á gangi. Herbergið er í útleigu.

Bæði íbúð og sameign hafa verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / [email protected]
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Lifum Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. sep. 2022
63.200.000 kr.
87.000.000 kr.
163.9 m²
530.811 kr.
31. jan. 2017
46.900.000 kr.
5.366.000 kr.
163.9 m²
32.739 kr.
8. sep. 2016
42.200.000 kr.
43.000.000 kr.
163.9 m²
262.355 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Lifum Heima Fasteignasala

phone