Opið hús: Hafnarbraut 12, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 24. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Eldhús með hvítri innréttingu sem nær upp í loft, spanhelluborð, ofn og innbyggður ísskápur/frystir ásamt innbygðri uppþvottavél. Parket á gólfi
Borðstofa/stofa myndar opið rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Gengið er út á sérafnotareit úr stofu sem er 13,8fm2. Fallegur timburpallur og steyptir skjólveggir.
Svefnherbergi: Fataskápur. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórir fataskápar. Parket á gólfi.
Baðherbergi. Góð innrétting með fínu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gler-sturtuklefi og upphengt salerni. Fallegar flísar á gólfi og veggjum.
Sér geymsla (6,4fm2) í kjallara er beint fyrir aftan bílastæði eignarinnar.
Sér bílastæði merkt E14 er með hleðslustöð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Rólegt hverfi með fallegum gönguleiðum og stutt er í skóla, leikskóla, Sky Lagoon og alla helstu þjónustu. Auk þess mun Fossvogsbrúin sem er í byggingu tengja svæðið við útivistarperlur Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar.
Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866 1763 eða á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.