Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 119,6 m2 heilsárshús/sumarhús á tveimur hæðum í byggingu við Seljadalsveg 4, í útjaðri byggðar rétt við Hafravatn, 271 Mosfellsbæ. Um er að ræða staðsteypt hús, einangrað að utan og klætt með álklæðningu og timbri. Þetta er síðasta húsið í fimm húsa þyrpingu á þessum frábæra stað.
Frábær staðsening, ca 10-15 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, tæknirými/þvottahús og tvö svefnherbergi. Stórir gólfsíðir gluggar þar í allar áttir þar sem útsýnið fær að njóta sín.
Húsið stendur á 5358,5 m2 eignarlóð og skilast í ágúst 2026 tilbúin til innréttinga skv. skilalýsingu seljanda en auk þess eignin fullmáluð að innan, rafmagn fullfrágengið með free@home hússtjórnarkerfi og fullfrágengið loftskiptikerfi frá Nibe. Húsið er hannað af Valhönnun.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Verð kr. 132.000.000,
Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss: Frístundarhús á tveimur hæðum staðsteypt og einangrað að utan
Útveggir eru einangraðir að utan með harðpressaðari steinull og klæddir með álklæðningu í bland við hitameðhöndlaða furu
Þak er staðsteypt plata viðsnúið þak með tvöföldum ábræddum asfaltpappa takkadúk XPS einangrun drendúk og fargi.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál rennihurðir
Lóð verður grófjöfnuð
Svalahandrið: Stálhandrið galvaniserað og málað svart.
Innanhúss:
Gólf eru steypt og röraslötuð á neðri hæð og anitrít ílögn á eftri hæð
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, staðsteyptir burðaveggir í bland við létta innveggi klæddir með spón/osb innra lag og gifsklætt ytra lag sparslað og málað
Stigi og handrið innanhúss er úr stáli málað svart er úr stáli málað svart
Loft: neðri hæð spörsluð og máluð. Efri hæð hljóðeinangraður dúkur
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd Freeathome kerfi úr Rafport . Rafmagn dregið í, tenglar, rofar og útiljós frágengin, innfelld ljós verða í hljóðdúk og ljósastæði í öðrum loftum
Lagnir: Eigin borhola fylgir eigninni með dælu og er hún tengd og fullfrágengin. Gólfhitakerfi tengt og fragengið. Neysluvatn lagt i golf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir i gólfplotu og innveggi. Varmadæla tengd og fullfrágengin til kyndingar a neysluvatni og gólfhitakerfi. ídrattarror klar fyrir heitanpott. Húsið er hitað upp með golfhitakerfi. Pipur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns skulu tengdar og fragengnar. Fragangur neyslu og fraveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar.
Eignin afhendist tilbúin til innréttinga samkvæmt byggingarstig B3. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.