Lýsing
Samkvæmt HMS er birt stærð eignarinnar 78,80 fermetrar. Eignin skiptist í forstofu/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, eldhús og stofu með útgengi á svalir.
Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Parket á gólfi og fatahengi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út á skjólgóðar svalir.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur við glugga. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Parketi á gólfi og fataskápar eru í hjónaherbergi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað baðherbergi með nýlegri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Þvottahús með borðplötu og hillum er innan íbúðar.
Sameign: Sérgeymsla er í kjallara. Sameiginlegt þvottahús með vélum er í kjallara og hjólageymsla á fyrstu hæð. Sameign hússins er snyrtileg og vel við haldin.
Húsið: Um er að ræða snyrtilegt lyftuhús þar sem aðeins tvær íbúðir eru á hverri hæð. Sameiginlegur bílakjallari fylgir húsinu auk nokkurra bílastæða við húsið. Falleg og gróin baklóð er við húsið.
Staðsetning: Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur þar sem miðbærinn, Klambratún, Öskjuhlíð og fjölbreytt þjónusta eru í göngufæri.
Þetta er björt, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður