Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Bergþórugata 16

101 Reykjavík

72.900.000 kr.

951.697 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008527

Fasteignamat

69.950.000 kr.

Brunabótamat

44.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1938
svg
76,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 22. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Bergþórugata 16, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 22. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Einstaklega falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (miðhæð) á eftirsóttum stað við Bergþórugötu í Reykjavík. Búið er að endurnýja eldhús á afar smekklegan máta. Búið er að endurnýja allt rafmagn og rafmagnstöflu innan íbúðar og vatns- og ofnalagnir. Skólp og þak hússins endurnýjað. Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Aðgangskort fylgir íbúð inn á bílastæði bakvið hús. Snyrtileg sameign og sér geymsla í kjallara.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 76,6 fm. og er geymsla íbúðar ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 


Nánari lýsing eignar:
Hol með fatahengi, litlum geymsluskáp og flísum á gólfi. 
Eldhús var endurnýjað árið 2014. Hvít sprautulökkuð innrétting sem nær upp í loft flísar á milli skápa, bakaraofn, keramik helluborð, gufugleypir og tengi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél getur fylgt eigninni. Borðkrókur og gluggi til norðurs. Nýleg rafmagnstafla/lekaliði er í eldhúsi.
Baðherbergi með flísalagðri sturtu, sturtugler, upphengt salerni, vaskur og blöndunartæki hafa verið endurnýjuð, innrétting, speglaskápur og flísar á gólfi. 
Samliggjandi stofur. Í dag er önnur nýtt sem svefnherbergi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Stór gluggi til suðurs.
Svefnherbergi I rúmgott með parketi á gólfi. Stór gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II rúmgott og bjart með góðu skápaplássi sem nær upp í loft og nýlegu parketi á gólfi. Gluggi til norðurs.
Geymsla íbúðar er í kjallara með máluðu gólfi, hillum og loftun. Fermetrar íbúðar eru ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar. 

Sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð er með sitt tengi í kjallara, snyrtilegt með þvottasnúrum og glugga til norðurs.
Sameign er snyrtileg og með dúk á gólfi. Stór gluggi til norðurs á stigagangi. Hægt er að ganga út á baklóð/ að stæðum í gegnum sameign.
Hitakompa (hjólageymsla) sameiginleg í kjallara. Hefur verið nýtt undir hjól/vagna.
Lóðin er frágengin, tyrfð og snýr til suðurs. 

Framkvæmdur á húsinu
Skólp endurnýjað árið 2019/2020
Ný rafmagnstafla í sameign 2021
Rafmagn og rafmagnstafla innan íbúðar endurnýjað 2022
Nýjar vatns- og ofnalagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2021
Þak hússins var endurnýjað 2024

Um er að ræða virkilega fallega íbúð á afar vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur. Í göngufæri við Sundhöll Reykjavíkur og alla verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netanginu [email protected]
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. maí. 2018
39.050.000 kr.
37.500.000 kr.
76.6 m²
489.556 kr.
29. júl. 2013
22.000.000 kr.
22.500.000 kr.
76.6 m²
293.734 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík