Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2002
99 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Opið hús: 25. júní 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Klapparhlíð 26, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 25. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Klapparhlíð 26, 99.0 fm 4 herb. endaíbúð á efri hæð í 8 íbúða 2ja hæða álklæddu húsi. Mjög góð staðsetning. Sérinngangur af svölum. 3 svefnherbergi, góðar innréttingar. Parket og flísar á gólfum. Örstutt í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, golfvöll og vinsæl útivistarsvæði. Mjög gott útsýni og loftar mjög vel um húsið og einnig eru góð bílastæði fyrir framan.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 226-1153, nánar tiltekið eign merkt 02-04, birt heildarstærð 99.0 fm. Þar af er íbúðin skráðir 91,5 fm og sérgeymsla í sameign merkt 02-09 er skráð 7,5 fm. Svalir eru til suðvesturs og eru skráðar 7,6 fm.
Eignin skiptist í:Forstofu, gang, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherb. Innaf baðherbergi er aðstaða fyrir þvottavél og þurkara,opið á milli en aðskilið samkvæmt teikningu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar: SÉRINNGANGUR AF SVALAGANGI.
FORSTOFA: Ágætlega rúmgóð flísalögð forstofa með hengi og gangur innaf forstofu.
HERBERGI I: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
HERBERGI II: Herbergi með parketi og skáp.
HERBERGI III: Ágætlega rúmgott parketlagt herbergi með skáp, er við hlið stofu og í einhverjum svipaðra íbúða er búið að taka niður millivegg og stækka stofurými.
BAÐHERBERGI/ÞVOTTAHÚS: Baðherbergi, flísalagt gólf, baðkar, innrétting og innaf er teiknað þvottahús en er opið á milli en lokað samkvæmt teikningu.
STOFA: Ágætlega rúmgóð stofa með parketi og gengið út á góðar suðvestursvalir með fínu útsýni.
ELDHÚS: Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu og góðum borðkrók við glugga, ofn í vinnuhæð. Flísalagt gólf.
SÉRGEYMSLA OG SAMEIGN: Rúmgóð sérgeymsla er á hæðinni og úti stigagangur að stigapöllum. Á geymslugangi á neðri hæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
BÍLASTÆÐI: Talsvert er af bílastæðum við húsið.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur [email protected] eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. feb. 2019
39.300.000 kr.
48.300.000 kr.
99 m²
487.879 kr.
20. nóv. 2014
22.950.000 kr.
30.800.000 kr.
99 m²
311.111 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026