Lýsing
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í góðu fjölbýli að Kleppsvegi 144. Nýlega búið að endurnýja gólfefni og setja gólfhita, endurnýja eldhús, þvottahús og baðherbergi. Húsið hefur fengið gott viðhald og var nýlega tekið í gegn að utan og sett góð klæðning á húsið, þak yfirfarið, gluggar yfirfarnir og skipt um gler. Lagnir hafa nýlega verið endurnýjaðar í húsinu sem og dren. Fallegt útsýni til fjalla.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð 120,2 fm og þar af er geymsla skráð 6,3 fm.
Nánari lýsing:
Forstofuhol er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í góðu rými með parket á gólfi. Huggulegur arinn sem notalegt er að fíra uppí á vetrarkvöldum. Útgengt á suð-vestur svalir.
Eldhús, opið í stofu, með góðri U-innréttingu með góðu vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, 2 ofna (annar combi) og x-tra stórt span helluborð.
Þvottahús með góðri innréttingu innaf eldhúsi. Þvottavél og þurrkari í góðri vinnuhæð. Mjög rúmgott.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og góðan fataskáp. Útgengt á norð-austur svalir með fallega fjallasýn.
Svefnherbergi II með parket á gólfi.
Svefnherbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi með bæði baðkar og sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, góða innréttingu og glugga.
Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Sameiginleg hleðslustæði með næsta húsi á sömu lóð.
Falleg eign á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla og alla þjónustu. Stutt í Laugardalinn og allt sem hann hefur upp á að bjóða, sund, fjölskyldu- og húsdýragarðinn o.fl. Stutt á stofnbrautir.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.