Lýsing
Íbúðinni fylgir stór og góður pallur, endurnýjað eldhús og gólfefni á alrými, virkilega góð staðsetning.
Samkv. HMS er eignin skráð 76,8 m², þar af er geymsla skráð 6,5 m²
Nánari upplýsingar veitir Halldór Freyr Fasteignasali, í síma 693-216 tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing;
Gengið er inn um sameiginlegan inngang á 1. hæð og er íbúðin sú fyrsta til vinstri.
Forstofan er flísalögð með góðum skápum.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2021 og er með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á milli efri og neðri skápa. Flísar á gólfi
Stofan og borðstofan er rúmgóð og björt með flísum á gólfi og útgengi á góðan pall sem snýr til suðvesturs.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtu og góðri hvítri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og nýlegu parketi á gólfi.
Barnaherbergið er einnig rúmgott með góðum skáp og parketi á gólfi.
Í kjallara er sérgeymsla íbúðar. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð.
*Ástandsskýrsla var gerð á húsinu í janúar 2024 og í kjölfar hennar var farið í þakviðgerð sem er lokið og greidd af seljanda.
*Sumarið 2026 stendur yfir málun hússins og glugga (múr, steypuviðgerðir, málun veggflata og tréverks ásamt endurnýjun og viðgerða glugga) greitt af seljanda
Virkilega björt og falleg íbúð miðsvæðis í Grafarvogi í vel viðhöldnu húsi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður