Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Haustakur 2

210 Garðabær

84.900.000 kr.

773.224 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2284244

Fasteignamat

79.550.000 kr.

Brunabótamat

57.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
109,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
Opið hús: 22. júní 2026 kl. 16:00 til 16:30

Lýsing

*OPIÐ HÚS Á MÁNUDAGINN 22.JÚNÍ KL 16:00-16:30*


Móeiður og Miklaborg kynna í einkasölu: Haustakur 2, virkilega bjarta og fallega íbúð með sérinngangi, stórum sólríkum svölum á einu eftirsóttasta stað Garðabæjar.


Falleg og rúmgóð 109,8 fm, 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (2. hæð séð frá götu) með sérinngangi, í Akralandinu í Garðabæ.

Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.


*LAUS VIÐ KAUPSAMNING*


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða [email protected]

Nánari lýsing

Íbúðin skiptist í: forstofu, hjónaherbergi, rúmgott barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, borðstofu og stofu. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni yfir Garðabæinn.


Forstofa: Komið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.

Stofa/borðstofa: Eru bjartar og rúmgóðar með gegnheilu eikarparketi á gólfi og útgengt er út á suðursvalir með flottu útsýni.

Eldhús: Er með flísum á gólfi og eikarinnréttingu með gráum borðplötum. Spanhelluborð með viftu yfir. Tengi er fyrir uppþvottavél og góður gluggi í eldhúsinu.

Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu. Eikarinnrétting með grárri borðplötu og salerni er upphengt.

Svefnherbergin: Eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.

Þvottaherbergi: Innan íbúðar með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með vaski.

Geymsla: Er í sameign og telur 8,7 fm ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.


Hleðslustöðvar eru fyrir framan hús. Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Akrahverfinu í Garðabæ.

Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta er í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum.


Laus við kaupsamning.


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. júl. 2007
25.420.000 kr.
27.700.000 kr.
109.8 m²
252.277 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík