Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Krummahólar 8 (410)

111 Reykjavík

64.900.000 kr.

614.002 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2049608

Fasteignamat

58.750.000 kr.

Brunabótamat

43.930.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
105,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir: Virkilega glæsileg og björt þriggja herbergja íbúð á 4. hæð auk stæðis í bílageymslu við Krummahóla 8 í Reykjavík. Frábært útsýni er úr íbúðinni. Svalir til suðurs sem ná þvert yfir alla íbúð. Íbúðin tekin algjörlega í gegn árið 2021. Eignin er skráð 105,7 fm, þar af er íbúð íbúð 74,9 fm og geymsla skráð 7,0 fm. Bílastæði í bílageymslu skráð samtals 23,8 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða [email protected]



Krummahólar 8 er sjö hæða fjölbýlishús með 58 íbúðum. Á lóðinni er einnig 58 stæða bílageymsluhús á einni hæð og í kjallara. Hverri íbúð fylgir eitt stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing

Forstofa: Fataskápur og ljóst harðparket á forstofu og alrými eignar. Til vinstri frá forstofu er gengið inná baðherbergi og þaðan í svefnherbergin. Til hægri er eldhús og alrými eignar. Frá stofu og borðstofu er gengið út á svalir með frábæru útsýni.

Baðherbergi: Sturta. Svört blöndunartæki í sturtu. Upphengt WC. Svört innrétting með stórum spegli fyrir ofan. Óbein baklýsing á bak við spegil. Fallegar 60x60 grár flísar á gólfi og hluta að veggjum. Hvítar flísar í sturtunni. Búið að koma fyrir plássi fyrir þvottavél inná baðherbergi. Byggður var einfaldur veggur og settar upp skúffur sem þvottavél stendur á og skápur fyrir ofan þvottavél.

Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi. Ljóst harðparket á gólfi. Fataskápar eru upprunalegir en hafa verið lakkaðir og gerðir upp. Útgengt út á svalir með frábæru útsýni.

Barnaherbergi: Barnaherbergi við hlið hjónaherbergis. Ljóst harðparket á gólfi.

Eldhús: Nýleg L-laga eldhúsinnrétting frá 2021 með eyju. Öll tæki einnig frá 2021. Vínkælir í eyju. Öll eldhústæki geta fylgt með. Öll tæki í eldhúsi koma frá Rafha.

Stofa / Borðstofa: Í alrými eignar. Frá eldhúsi er gengið inn í stofu og borðstofu. Frá borðstofu er útgengt út á svalir með frábæru útsýni til suðurs. Gluggar á tvo vegu í stofu og borðstofu. Gólfhiti er í stofunni.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðar skráð samtals 7,0 fm. Er á sömu hæð og íbúð.

Sameign: Snyrtileg og góð sameign í alla staði. Nýleg lyfta í sameign ásamt nýlegri rennihurð. Lyfta og rennihurðar voru settar upp árið 2023.


Virkilega falleg og björt íbúð sem búið er að taka algjörlega í gegn á síðustu árum. Allar lagnir í eldhúsi og baðherbergi vel einangraðar. Húsfélagið vel rekið og sameign góð. Búið er að skipta út öllu gleri og flestum gluggum í íbúðinni.

Allar nánari upplsýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða [email protected]


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. sep. 2020
34.450.000 kr.
33.000.000 kr.
105.7 m²
312.204 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík