Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
raðhús

Jörfalind 19

201 Kópavogur

174.000.000 kr.

911.950 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2227118

Fasteignamat

139.250.000 kr.

Brunabótamat

100.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1996
svg
190,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt og mikið endurnýjað 190,9 fm endaraðhús á tveimur hæðum við Jörfalind 19 í Kópavogi. Innbyggður bílskúr. Húsið skiptist m.a. í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 3-4 herbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús og geymslu. Gróinn garður með stórri timburverönd. Einnig er nýleg timburverönd framan við húsið. Fallegt útsýni er úr húsinu. Hiti er í stétt fyrir framan húsið. Húsið er mjög vel staðsett en það stendur innst í botngötu. 

Nánari upplýsingar veitir: Magnea S. Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali s. 861 8511.
Eignin verður sýnd ÞRIÐJUDAGINN 23. JÚNÍ n.k. Bókið skoðun með því að senda póst til: [email protected]


Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu. Hiti er í gólfi.
Snyrting: Inn af forstofu er flísalögð snyrting með glugga. 
Stofa, borðstofa og eldhús mynda eina heild. Mikil lofthæð er í rýminu. Stórar og bjartar parketlagðar stofur. Gengið er út á svalir úr stofum. Fallegt útsýni. Eldhúsið var endurnýjað að miklu leyti fyrir nokkrum árum. Mjög falleg ljós innrétting með granít á vinnuborðum. Eyja með barborði. Hiti er í gólfi.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr. Epoxy á gólfi. Innangengt er bílskúrinn frá snyrtingu. 
Neðri hæð:
Steyptur parketlagður stigi er á milli hæða með sérsmíðuðu handriði.
Hjónherbergi: Parketlagt hjónaherbergi með skápum.
Barnaherbergi I: Parketlagt herbergi með skápum. 
Barnaherbergi II: Parketlagt herbergi. 
Fjölskylduherbergi: Parketlagt herbergi (með rennihurð en opið að hluta til). Mætti nýta sem herbergi. Gengið er út í garð úr herberginu.
Baðherbergi: Mjög rúmgott baðherbergi sem var nýlega endurnýjað að miklu leyti. Baðkar og walk in sturta. Innrétting með granít á vinnuborðum. Tveir vaskar í innréttingu. Hiti er í gólfi. 
Þvotttahús: Þvottahúsið hefur nýlega verið endurnýjað. Sérsmíðuð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gólf er flísalagt.
Geymsla: Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla. 
Parket á neðri hæð var endurnýjað fyrir um 6 árum síðan.

Mjög falleg eign á eftirsóttum stað. Örstutt í leikskóla og skóla. Öll helsta þjónusta í næsta nágrenni.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. sep. 2006
34.960.000 kr.
48.000.000 kr.
190.8 m²
251.572 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík