Lýsing
Eignin er samtals 139.7fm að stærð og þar af bílskúr 34.2fm. Frábær staðsetning í grónu og eftirsóttu hverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða [email protected]
Forstofa: Flísar á gólfi, nýlegur fataskápur.
Eldhús: Hvítfillmuð og plássgóð eldhúsinnrétting, parket á gólfi. Ný blöndunartæki, vaskur og borðplata.
Stofa: Björt og opin stofa, sem er opin inn í eldhúsið. Parket á gólfi. Þaðan er útgengt á sólpall í bakgarði.
Herbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi, flísar á gólfi og nýjar flísa-baðplötur á veggjum, ásamt nýrri innréttingu.
Þvottahús: Tengir saman íbúð og bílskúr. Ágæt innrétting og flísar á gólfi.
Bílskúr: Fullbúinn bílskúr með flísum á gólfi. Nýtist í dag sem "Leikherbergi" og geymsla. Úr bílskúr útgengt í bakgarð.
Herbergi: Búið er að stúka og og byggja herbergi í hluta bílskúrs.
Garður: Stór og góður garður, með sólpalli, með geymsluskúr og heitum potti. Nýlega hefur verið byggt verklegt grindverk umhverfis lóðina.
Samantekt: Frábært fjölskylduhús í grónu og vinsælu hverfi. Fjögur svefnherbergi og sólpallur með heitum potti.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða [email protected]
Framkvæmdalisti:
2026 Baðherbergi uppgert, nýjar lagnir, nýtt wc, nýjar flísa-baðplötur á veggjum ný innrétting
2026 Skipt um gler suðurhlið hússins (í vinnslu)
2026 bætt við tenglum eldhúsi og lagnir endurbættar ( í vinnslu)
2024 grindverk reist umhverfis garðinn og staurar komnir fyrir stækkun sólpalls í bakgarði.
2022 ný möl sett í innkeyrslu
2021 eldhúsinnrétting filmuð, ný blöndunartæki, nýr vaskur og borðplata
2021 allar innihurðir filmaðar
2021 rafmagn í bílskúr bætt og rafmagnstafla yfirfarin
2021 herbergi útbúið í bílskúr
2021 geymsluloft bílskúr klætt og einangrað
2021 ný innrétting sett upp í þvottahúsi
2021 nýtt harðparket lagt á allt húsið
2021 nýjir fataskápar settir upp í forstofu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.