Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
374 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum þar sem hvor hæð myndar sjálfstæða einingu. Húsið var endurnýjað að miklu leyti árið 2020 og býður upp á  rúmgott einbýli á efri hæð og fullbúna aukaíbúð á neðri hæð sem getur skilað um 420.000 kr. í leigutekjur á mánuði. Tilvalið fyrir stóra fjölskyldu, fjölskyldu með eldri börn, eða kaupendur sem vilja útleigueiningu samhliða góðu einbýli.

Helstu staðreyndir:
  • Eikarás 1 er einbýlishús á tveimur hæðum, tvær sjálfstæðar einingar.
  • Heildarstærð hússins er 374m2.
  • Efri hæð er fimm herbergja einbýli með 40m2 tvöföldum bílskúr, samtals 240m2.
  • Neðri hæð er þriggja herbergja íbúð með sérinngangi, samtals 134m2. 
  • Byggingarár eignar 2003 en mikið endurnýjað árið 2020.

Efri hæð – aðalhæð hússins
Efri hæðin er sérlega björt og vel skipulögð. Þar er rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, auk setustofu og sólskála. Útgengt er á verönd frá alrýminu. Eldhúsið er stílhreint með dökkum innréttingum, eyju, innbyggðum tækjum og góðu skápaplássi. Á hæðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, þar á meðal hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, sér þvottahús og rúmgóð forstofa. Tvöfaldur bílskúr, 40 m².

Neðri hæð – sjálfstæð aukaíbúð
Neðri hæðin er fullbúin, sjálfstæð íbúð með sérinngangi – tilvalin til útleigu eða fyrir stóra fjölskyldu sem þarfnast sveigjanleika. Þar er forstofa, tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa, setustofa, glæsilegt eldhús, baðherbergi og rúmgott þvottahús. Eldhúsið er einstaklega vandað með, ljósri borðplötu og innbyggðum Siemens-tækjum, og stofu með útgengi á hellulagða suðurverönd. Hæðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 2020.

Mjög hentug eign fyrir stóra fjölskyldu eða fjölskyldu sem þarf sveigjanlegt skipulag. Ath: eignin er skráð 346m2 skv. HMS en inn í þá tölu vantar stækkun hússins sem var gerð samhliða aukaíbúð neðri hæðar.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected].

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. júl. 2019
119.850.000 kr.
119.000.000 kr.
346.1 m²
343.831 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík