Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2013
svg
262,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Laus strax

Lýsing

Ásmundur Skeggjason fasteignasali kynnir glæsilegt einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og aukinni lofthæð. Eignin stendur á einstaklega friðsælli og skjólgóðri endalóð. Við húsið er um 150 fm viðarpalli til suðurs með fallegu útsýni yfir Garðabæ. Á lóðinni eru næg bílastæði, með pláss fyrir fjóra bíla og hjólhýsi á hellulagðri innkeyrsla.

Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér

Við inngang tekur á móti parketlögð forstofa. Innaf forstofu er gestasalerni með sturtu, þar sem bæði gólf og veggir eru flísalagðir.
Úr forstofu er innangengt í rúmgóðan, um 50 fm bílskúr með tvíbreiðri bílskúrshurð sem er 2,4 metrar á hæð.
Frá forstofu er einnig komið inn í miðrými hússins sem nýtist vel sem sjónvarpsherbergi. Þar er parket á gólfi.
Þaðan er gengið inn í opið og bjart alrými, um 60 fm að stærð, þar sem eldhús og stofa mynda samfellda heild. Eldhúsið er með sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu og eru bæði eldhús og stofa parketlögð. Úr stofu er útgengt um rennihurð út á verönd og garð.
Í húsinu eru þrjú barnaherbergi. Tvö þeirra eru um 15 fm, parketlögð og með fataskápum. Þriðja barnaherbergið er um 12 fm, einnig parketlagt og með fataskáp.
Hjónasvíta er rúmgóð, um 25 fm, með innangengu fataherbergi og útgengi út á pall. Bæði hjónaherbergi og fataherbergi eru parketlögð. Fataherbergi má auðveldlega breyta í baðherbergi þar sem allar lagnir eru þar til staðar.
Aðalbaðherbergi hússins er flísalagt og búið baðkari, walk-in sturtu og baðinnréttingu. Innaf baðherbergi er rúmgott þvottahús.
Húsið er búið KNX hússtjórnunarkerfi sem stýrir lýsingu, hitakerfi og hluta af gluggatjöldum. Kerfið er fulluppsett og frágengið með mjög notendavænu viðmóti.

Hér er á ferðinni gott vel staðsett einbýli á eftirsóttum stað í Garðabæ, í göngufæri  við leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og íþróttastarfsemi. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, [email protected], Gsm 895 3000.-
 

img
Ásmundur Skeggjason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. mar. 2018
97.000.000 kr.
115.000.000 kr.
262.6 m²
437.928 kr.
8. nóv. 2013
49.850.000 kr.
64.000.000 kr.
262.6 m²
243.717 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík