Opið hús: Skerjabraut 1, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Björt og vel skipulögð 3ja herbergja 93.3 fermetra endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi sem byggt var árið 2015 og er staðsett á mörkum Vesturbæjar og Seltjarnarness. Íbúðin er með svölum sem snúa í austur. Aukin lofthæð er í íbúðinni og er hún einstaklega björt og með útsýni í þrjár áttir. Vandaðar innréttingar frá GKS í eldhúsi og á baði.
Nánari lýsing: Komið er inn á parketlagt anddyri með fataskápum. Baðherbergi er flíslagt, veggir og gólf, með upphengdu salerni, sturtuklefi er flísalagður með glerskilrúmi og blöndunartækjum með stáláferð. Vönduð innrétting frá GKS er á baðherbergi og tengi fyrir þvottavél. Gangur inn í stofu/eldhús, gólfsíðir gluggar. Svefnherbergi eru rúmgóð með góðum fataskápum, viðarparket á gólfum.
Stofa og eldhús eru samliggjandi með viðarparketi á gólfum. Úr stofu er gengið út á svalir með útsýni. Eldhús er með vönduðum innréttingum frá GKS. Eldhústæki eru frá AEG og með stáláferð. Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla. Húsfélagið er vel rekið og góð samstaða innan þess. Garðurinn er vel hirtur með sameiginlegu trampólíni. Stutt í alla þjónustu, matvöruverslun, sundlaug, barnaskóla og einungis nokkrar mínútur að ganga niður að sjó.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.