Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1998
107 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 29. júní 2026
kl. 17:00
til 18:00
Opið hús: Bakkastaðir 1, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 29. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og björt fjölskylduíbúð með sérinngangi á efri hæð í litlu fjölbýli á vinsælum stað rétt við Golfvöll GR í Grafarvogi. Um er að ræða fjögra herbergja endaíbúð, skráð samkvæmt fasteignamati samtals 107,0 fm sem skiptist í 101,2 fermetra íbúð og geymslu 5,8fm. Tvennar svalir eru á eigninni, bæði við inngang og bakatil frá eldhúsi, en sér inngangur er í eignina af svölum. Eignin skiptist í anddyri, rúmgóða stofu og samliggjandi eldhús, rúmgott hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, þvottahús og baðherbergi,Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs.í síma 663-2508 eða [email protected]
Komið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Dyr með gleri inn í íbúð. Lítill gangur tekur við af forstofu þar sem herbergi og bað eru til hægri, stofa og eldhús til vinstri. Stofan er rúmgóð með ágætu plássi bæði fyrir setustofu og borðstofu, með glugga til norðurs og til vesturs að svölum, dyrum út á svalirnar. Parket á gangi og stofu. Eldhús er hálfopið til stofu, stórt og rúmgott með góðu plássi fyrir eldhúsborð, stórri eldhúsinnréttingu með hvítum neðri skápum og viðar/hvítum efri skápum. Eldhúsið er bjart og rúmgott, hálfopið til stofu, með gluggum í tvær áttir og stórum svölum með góðu útsýni en golfvöllur GR er hinum megin aðliggjandi götu. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi er með flísalögðum veggjum og gólfi, sturtuklefi, hvítur skápur er undir vaski, viðarlitur skápur og stór spegill yfir vaski. Herbergin eru þrjú, parket er á gólfum allra herbergja og góðir fataskápar. Innan íbúðar er þvottaherbergi með flísum á gólfi, vinnuborði, skápum og snúrum.
Þak var riðhreinsað og málað fyrir nokkrum árum. Tröppur endurgerðar fyrir þremur árum, en hiti er í tröppum og stétt fyrir framan tröppurnar. Gluggar yfirfarnir og skipt um flesta glerlista. Frárennsli var myndað og sagt í lagi þó sig sé í lögninni að hluta.
Í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni ásamt sameiginlegu geymslulofto og hjóla og vagnageymsla.
Björt og falleg eign á frábærum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í m.a fallega náttúru, golfvöll GR, Egilshöll og fl.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. nóv. 2006
19.130.000 kr.
24.500.000 kr.
107 m²
228.972 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026