Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Bergstaðastræti 11

101 Reykjavík

88.900.000 kr.

863.946 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2005811

Fasteignamat

80.050.000 kr.

Brunabótamat

52.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
102,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lggf. kynna í einkasölu einstaklega bjarta og fallega miðbæjareign. 
Um er að ræða 102,9 fm. íbúð skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er geymsla í sameign 4,9 fm. Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, 2 stofur, 1 eldhús og 1 baðherbergi. Bílastæði á baklóð tilheyra íbúum í húsinu. 
Þetta er einstaklega björt og rúmgóð íbúð í hjarta miðborgarinnar við Bergstaðastræti 11a, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. veitingastaði, verslanir, matvöruverslun skóla og leikskóla.

Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa/hol er rúmgott og opið rými með stórum fataskáp.
Eldhús er hálf opið með hvítri innréttingu, góðu skáparými og bekkplássi, tengi fyrir uppþvottavél og bekkplötu úr náttúrsteini.
Stofur eru í  björtu og opnu samfelldu rými í með stórum gluggum til vesturs og þar rúmast vel borðstofa og setustofa . Auðvelt væri að stúka af og útbúa auka herbergi.
Hol fyrir framan svefnherbergin er með ágætri aðstöðu fyrir heimavinnu og inn af því er geymsla með góðum hillum.
Hjónaherbergi er rúmgott með innfelldum fataskápum, frá því er gengið út á svalir sem snúa í austur.
Barnaherbergi er með innbyggðum fataskáp. 
Baðherbergi er flísalagt með fallegum marmaraflísum, hvítri innréttingu, skáp og sturtu. Þar er tengi fyrir þvottavél.
Íbúðin er björt og rúmgóð með skemmtilegu flæði og mikilli birtu.
Húsinu fylgir baklóð þar sem 5 bílastæði eru í sameign fyrir íbúa hússins.
Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla sem íbúðinni fylgir auk þess sem þar er sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi.
Húsið virðist vera í góðu ástandi en þak var yfirfarið og málað ca 2021, auk þess sem þá var farið í múrviðgerðir og ytra byrði málað.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. maí. 2021
49.750.000 kr.
54.900.000 kr.
102.9 m²
533.528 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík