Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Byggt 1934
113,7 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Gengið inn frá Vonarstræti
Lind fasteignasala og Viðar Marinósson - [email protected], 8984477 Íbúðin skiptist í forstofu/gang, eldhús, borðstofu, stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, herbergi/sjónvarpsstofu og baðherbergi. Útgengt er á svalir frá eldhúsi og sérgeymsla fylgir í kjallara.
Úr íbúðinni er einstakt og fallegt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu. Næg bílastæði eru í nærliggjandi götum auk bílastæðahúss í Ráðhúskjallara.
Íbúðin er laus til afhendingar strax eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Nánari lýsing :
Forstofa/Gangur
Komið er inn á flísalagðan gang með fallegum náttúrusteini á gólfi og góðu fatahengi.
Borðstofa
Rúmgóð og björt borðstofa með glugga út að svölum. Massíft parket er á gólfi. Borðstofan tengist bæði eldhúsi og stofu á fallegan hátt og er skráð sem herbergi samkvæmt teikningum eignarinnar.
Stofa
Falleg og björt stofa með stórum gluggum sem veita einstakt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu. Massíft parket á gólfi.
Hjónaherbergi
Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp og massífu parketi á gólfi.
Barnaherbergi
Notalegt barnaherbergi með fataskáp og massífu parketi á gólfi.
Herbergi/Sjónvarpsstofa
Rúmgott og fjölnota herbergi með massífu parketi á gólfi sem nýtist ýmist sem svefnherbergi eða sjónvarpsstofa. Í dag er rýmið nýtt sem stækkun á stofu og skapar þannig opið og bjart alrými.
Eldhús
Fallegt og nýlega endurnýjað eldhús með vandaðri innréttingu frá GKS. Innbyggð heimilistæki, þar á meðal ísskápur með frysti, uppþvottavél og þvottavél með þurrkara, fylgja með eigninni. Spanhelluborð og ofn. Náttúrusteinn og parket á gólfum. Frá eldhúsi er útgengt á svalir.
Baðherbergi
Smekklega innréttað baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og ný ljósgrá baðinnrétting sem gefur rýminu fallegt og nútímalegt yfirbragð.
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta íbúð á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar þar sem stórkostlegt útsýni yfir Tjörnina og að Ráðhúsinu setur einstakan svip á eignina. Eign sem vert er að skoða.
Inga Sigurjónsdóttir arkitekt hjá studiohring sá um innanhúshönnun á íbúðinni.
Allar upplýsingar um eignina veitir Viðar Marinósson í síma 8984477 og [email protected]