Lýsing
Fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð!
Frábær staðsetning miðsvæðis á Brekkunni
Afar rúmgóð fjögurra herbergja 107,5m2 íbúð á fyrstu hæð í norðurenda hússins.
Komið er inn í stórt hol, þar er parket á gólfi, rýmið hefur verið nýtt sem sjónvarpshol.
Herbergin eru þrjú, tvö ágætlega rúmgóð með skápum og eitt minna. Parket er á gólfum í þeim öllum.
Stofa er björt og stór, parket á gólfi, gengið út á flísalagðar svalir til vesturs.
Eldhús var endurnýjað fyrir u.þ.b. 10 árum, ljósar hurðir á innréttingu, ljós borðplata, ofn, keramikhelluborð og vifta sem blæs út.
Baðherbergi er með ljósum flísaþiljum á veggjum, hreinlætistæki, baðkar, handlaug og salerni eru hvít, einnig innrétting.
Geymsla með linoleumdúk á gólfi og hillum á veggjum, gengið úr henni inn í þvottahús sem einnig með linoleum dúk gólfi, innrétting með eikarhurðum. Gott borðpláss og skolvaskur, rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Snyrtileg sameign
Í kjallara eru:
Sérgeymsla og hjóla/vagnageymsla, einnig er stórt rými sem ekki hefur verið innréttað.
Unnið er að málningu hússins að utan, sjá seljendur um sinn hluta þess.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.