Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
179,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Bílskúr

Lýsing

EIGNIN ER SELD OG ÞVÍ FELLUR NIÐUR FYRIRHUGAÐ OPIÐ HÚS

Nýtt í sölu! Glæsilegt og mikið endurnýjað endaraðhús með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum!


Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað 179,7 fermetra endaraðhús á tveimur hæðum með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum á fjölskylduvænum stað í lokuðum botnlanga við Lerkiás í Garðabæ. Eignin er samtals 179,7 fermetrar að stærð og skiptist í 158,0 fermetra íbúðarrými og 21,7 fermetra innbyggðan bílskúr. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum, m.a. eldhús, gólfefni, baðherbergi, innihurðir og gólfhita komið fyrir á neðri hæð. Þá var bætt við verönd, rennihurð úr stofu á nýja verönd og heitum potti sunnan megin við hús. Auk þess var þak yfirfarið árið 2025 og þakkantur endurnýjaður.

Virkilega sjarmerandi og skjólgóðar afgirtar verandir sunnan og vestan megin við húsið. Kvöldlýsing í grindverki og heitur pottur (hitaveitu). Geymsluskúr er staðsettur á verönd í bakgarði. Verönd sem nýtur sólar allan daginn og fram á kvöld. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu.

Uppsetning rýma: Forstofa, rúmgott alrými sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi. Virkilega snyrtilegur bílskúr sem er innangengur frá forstofu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum, glugga til suðurs og austurs.
Stofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og gólfhita. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs. Stofa er opin við eldhús og með útgengi á lóð til suðurs og vesturs.
Verönd: Er afgirt, skjólgóð og snýr til suðurs og vesturs. Kvöldlýsing í grindverki og heitur pottur (hitaveitu). Geymsluskúr er staðsett á verönd. Bæði verönd til suðurs og vesturs eru mjög skjólgóðar.
Eldhús: Er opið við stofu og borðstofu. Flísar á gólfi og gólfhiti. Falleg nýleg eldhúsinnrétting með eyju og steini frá Steinprýði steinsmiðju á borðum. Gott skápapláss og mikið vinnupláss. Undirfelldur vaskur og lýsing undir efri skápum. Tvöfaldur LG kæliskápur, Siemens bakaraofn, Siemens örbylgjuofn, Siemens spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi til vesturs.
Baðherbergi I: Hefur verið endurnýjað á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerhurð, falleg innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til vesturs. Innfelld lýsing í loftum og útgengi á svalir. Glæsilegt útsýni út á sundin, að Bessastöðum, Snæfellsjökli og víðar.
Svalir: Eru stórar með flísum á svalagólfi og afar glæsilegu útsýni.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og þakglugga.
Svefnherbergi III: Er stórt, með harðparketi á gólfi og gluggum til austurs. Fataherbergi inn af herbergi ásamt geymslu.
Fataherbergi: Er staðsett inn af svefnherbergi III. 
Geymsla: Er staðsett inn af svefnherbergi III:

Bílskúr: Er 21,7 fermetrar að stærð og afar snyrtilegur. Flísalagt gólf og bílskúrshurð með rafmagnshurðaopnara.

Um er að ræða frábært fjölskylduhús í þessu vinsæla hverfi í Ásunum Garðabæ. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected].

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. okt. 2015
50.650.000 kr.
61.500.000 kr.
179.7 m²
342.237 kr.
29. ágú. 2014
47.100.000 kr.
54.200.000 kr.
179.7 m²
301.614 kr.
12. júl. 2006
30.710.000 kr.
41.000.000 kr.
179.7 m²
228.158 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur