Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sunna Björk Atladóttir
Eva Dögg Bergþórsdóttir
Vista
einbýlishús

Freyjugata 15

550 Sauðárkrókur

66.900.000 kr.

367.582 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2131527

Fasteignamat

61.050.000 kr.

Brunabótamat

66.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1945
svg
182 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Freyjugötu 15, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Átta herbergja einbýlishús. Skráð stærð íbúðarhússins skv. HMS er 182 fm. Byggt árið 1945. Húsið er steypt, með timburgólfi á milli hæða.
Leigulóð hússins er 677 fm.

Efri hæð: 

Á hæðinni er eldhús, fjögur herbergi, stofa og baðherbergi. 
Eldhús er dúkalagt. Innrétting er upprunaleg. 
Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð. Öll herbergin eru dúkalögð.
Stofa er dúkalögð.
Baðherbergi með sturtu.

Neðri hæð:
Neðri hæð er ófrágengin, mögulegt er að útbúa sér íbúð þar. Á hæðinni er forstofa, þrjú herbergi (hægt að nýta eitt sem stofu), ófrágengið eldhúsrými og ófrágengið baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Komið er inn í dúkalagða sameiginlega forstofu, teppalagður stigi er uppá efri hæð. Lítil geymsla er undir stiga á neðri hæðinni. 
Eldhús er ófrágengið, án innréttinga, tækja og gólfefnis. 
Þrjú herbergi sem eru án hurða og gólfefna (hægt að nýta eitt þeirra sem stofu). 
Baðherbergið er ófrágengið, án innréttinga og tækja. 
Í þvottahúsi er útihurð til norðurs. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla

Þak var endurnýjað rétt fyrir aldamót. 
Skipt var um glugga fyrir um þremur árum. Fasteignin hefur fengið gott viðhald að utan.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala

 

Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone
Fasteignasala Sauðárkróks

Fasteignasala Sauðárkróks

Sæmundargötu 1, 550 Sauðárkrókur
phone